Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 27

Skírnir - 01.08.1908, Page 27
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta. 219 arjátningar kaþólsku kirkjunnar. En auk þess samdi hann og menn hans sérstök rit, er síðan urðu játningar- rit lútersku kirkjudeildarinnar. Af þeim heíir danska kirkjan, sem kunnugt er, játað sem sín játningarrit að eins: Agsborgarjátninguna og Fræði Lút- ers hin minn il). Ágsborgarjátninguna, sem jafnan hefir talin verið merkasta trúarjátning kirkjudeildar vorr- ar, samdi Melanchton með samþykki Lúters. Var hún lögð fram á ríkisþinginu í Ágsborg 1530 ogafhent keisaranum á latínu og þýzku. Hún kom fram sem sáttatilboð af hendi Lúterstrúarmanna, og leggur því af ásettu ráði áherzlu á hina sameiginlegu trú, þeirra og kaþólskra manna. Siðbótarmenn hafa í riti þessu farið eins langt og þeir þá frekast gátu, til samkomulags við Páfatrúar- menn. Melanchton gaf játninguna út árið 1531 og síðar oftar, og gerði á henni smávægilegar orðabreytingar, er allar áttu að miða til þess, að gera hana sem skiljanleg- asta og ijósasta. En efnisbrevting töluverð var gerð á útgáfunni, er út kom 1540. Þá breytti Melanchthon eink- um 10. greininni, sem er um kveldmáltíðarsakramentið. Fór sú breyting í þá átt, að jafna að nokkuru leyti yfir mismun þann, er var á skilningi Lúters og þeirra Zwinglí og Calvíns eða endurbættu kirkjunnar. Melanchthon var friðsemdarmaður meiri en Lúter og vildi gjarnan reyna að koma sem mestu samlvndi á. En Lúter likaði breyt- ingin illa og hún vaið síðar mikið deiluefni. En fyrst framan af var enginn munur gerður á útgáfum játningar- innar. En þegar ágreiningurinn síðar varð enn meiri meðal lútersku kirkjudeildarinnar og hinnar endurbættu, þá afneituðu Lúterstrúarmenn breyttu játningunni (Con- ‘) Almennast hafa þessi sömu rit lika verið talin játningarrit ís- lenzku kirkjunnar. En nokkur efi leikur á um það, hver játningarrit vor kirkja hafi viðurkent að lögum. En með því að hin envangelísk- lúterska kirkja er þjóðkirkja á íslandi samkvæmt stjórnarskránni, rnun sennilegt að líta svo á, að hún kannist við Agsborgarjátningu og Fræði Lúters hin minni sem sin játningarrit.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.