Skírnir - 01.08.1908, Blaðsíða 35
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta.
227
Var hann kærður og ráðaneytið skaut málinu undir dóm
kirkjuráðsins; en í því sátu allir 7 biskupar landsins,
ásamt 2 prófessorum háskólans (annar lögfræðingur, hinn
guðfræðingur). Eigi vildi kirkjuráðið láta víkja prestinum
úr embætti fyrir skoðanir þær, er hann hafði flutt, heldur
veita honum áminning fyrir þá œsingar-aðferð (den
agitatoriske Form), er hann hafði beitt, þrátt fyrir undan-
gengna viðvörun. Hitt áleit kirkjuráðið í sjálfu sér ekki
óleyfilegt þjóðkirkjupresti, að hafa þessa skoðun hans á
útskúfunarlærdómi Agsborgarjátningarinnar og halda henni
fram á hóflegan hátt.
Kunnugt er og, að ýmsir merkir menn dönsku kirk-
junnar á síðustu öld hafa í einstökum atriðum haft skoð-
anir frábrugðnar játningarritunum. Má þar fyrst og
fremst nefna jafnmikla ágætismenn og biskupana Mynster
og Martensen. M y n s t e r vildi ekki samþykkja orðalag
postullegu trúarjátningarinnar í einu atriði; hann neitaði
upprisu holdsins, en vildi í stað þess hafa: upprisa
líkamans (sbr. orð Páls postula: náttúrlegum líkama
er niður sáð, en upp rís andlegur líkami, 1 Kor. 15, 44).
Martensen vildi fara miklu vægilegar í útskúfun-
arkenningunni en Agsborgarjátning gerir; áleit að miusta
kosti eigi rétt að halda slíku fram nema sem mögu-
legleika. (Sbr. ummæli ritstjóra Kirkjublaðsins, I. árg.
bls. S7—88: hinn hræðilegi mögulegleiki).
Yfirbiskup dönsku kirkjunnar, sem nú er, S k a t R ö r-
d a m, hefir á prenti látið þess getið, að í tveim atriðum sé
hann ósamdóma játningarritum dönsku kirkjunnar, sem sé
kenning Agsborgarjátningar um það, að aflausnin sé sakra-
menti, og þessum orðum í Fræðunum: »og á efsta degi
mun hann (þ. e. heilagur andi) uppvekja mig og alla dauða«.
Hinn nafnkunni prestur Vilhelm Beck neitaði því,
að syndafyrirgefning veitist í kveldmáltíðarsakramentinu,
sem þó er skýlaus kenning Fræðanna; og margir prestar
í Danmörku fylgja í því atriði, að sögn, skoðunum hans,
Einn þeirra danskra presta, er mestrar virðingar nýt-
ur þar í landi sem ágætisprestur, er 011 o M ö 11 e r. Hann
15*