Skírnir - 01.08.1908, Side 41
Trúarjátningarnar og kenningarfrelsi presta. 28*i'
þær beinlínis i' orði kveðnu afnumdar«. Með þessum
orðum hefir síra J. B. kipt grundvellinum undan trúar-
játningunum. Þær eiga að hans dómi að standa á inn-
blásturskenning hans, en sú innblásturskenning er ósönn.
Og hætt er við, að sumum, sem trúað hafa slíkum kenn-
ingum, finnist grundvöllurinn undir skoðun sinni fara að*
verða nokkuð óstöðugur, er þeir athuga málið vandlega.
Sumum finst ef til vill margt og mikið hrynja. En þá
ber að gæta þess, að það er ekki kristindómurinn eða hin
kristilega lífsskoðun, sem hrynur, heldur reisipallar kring
um kristindómshöllina, sem ófullkomnir menn hafa búið
til. Þeir reisipallar hafa gerðir verið af trúarákafa, en
lítilli skynsemd á stundum. Og svo getur farið, að menn
liggi með limu brotna eftir hrun pallanna. En slík slys
eru mönnunum að kenna, — þeim mönnum, sem reynt hafa
að koma röngum mannasetningum og ófullkomnum skoð-
unum í sæti kristnu trúarinnar sjálfrar, þeirrar lífsskoð-
unar, er Jesús Kristur boðaði. Slikir reisipallar verða
oftast til þess að veikja kristindóminn. Kristindómurinn
þarf þeirra ekki við; já, meira að segja: þeir verða hon-
um áreiðanlega tálmi. Kristur reit sjálfur enga trúarjátn-
ing, lét ekkert rit eftir sig. Enda mundi slikt hafa orðið
málefni hans til lítils gagns, en oft til ógagns. Það hefði
orðið fjötur á kenning hans. Slíka fylling, sem kristin-
dómurinn er, verður aldrei unt að fela í neinni játning
eða neinu riti. Hann sprengir af sér alla slíka fjötra
með tímanum, vex upp úr öllum fötum, sem mennirnir
búa til á hann, jafnvel þótt þau eigi að vera við vöxt að
þeirra dómi.
Og nú vona eg að mönnum fari að verða ljóst, hvað
á milli ber. Baráttan er í insta eðli sínu um það, hvort
framþróun eigi sér stað innan kirkjunnar, og yfirleitt í
heimi trúarbragðanna, eða ekki.
Þeir, sem binda. vilja kenning presta við játningar-
ritin, hljóta að vera þeirrar skoðunar, að kirkjan hafi
öðlast fullkominn skilning, þurfi engu við sig að bæta,
ekkert meira að læra. Því að ef kirkjunni er að fara