Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 50

Skírnir - 01.08.1908, Page 50
242 Taujaveikin. hana. Henni batnar. Eldra barnið er lasið vikutíraa síð- ast í janúar. Annars allir frískir. Um vorið er borið úr forinni á túnið einn góðan veðurdag. Hálfum mánuði síð- ar verður vinnumaðurinn lasinn — legst — í taugaveiki. Saurindum hins fyrra sjúklings hafði verið kastað í forinar sóttkveikjan lifað þar, vinnumaður fengið hana þaðan. Lasleiki barnsins var taugaveiki, en það grunaði enganr af því að veikin var svo væg. 2. heimili: Miðaldra hjón. 4 3tálpuð börn. 2 vinnu- konur. 1 vinnumaður. Sóðaheimili. Um krossmessuleyti kom þar stúlka. Hún var föl og lotlegr sagðist hafa legið vikutima, en verið lasin miklu lengurr en þóttist ekki vita, hvað að sér hefði gengið — baðst gistingar, svaf hjá annari vinnukonunni. 3 vikum síðar lagðist þessi vinnukona. Þegar hún hafði legið 3 vikur, iagðist hin vinnukonan Nú var læknir sóttur. Hann kvað þetta taugaveikir skipaði sóttvörn; en eftir hálfan mánuð lagðist alt liitt fólkið á fám dögum. Tvent dó, húsmóðirin og vinnumaðurinn. Svo var heimilið sótthreinsað. En eftir þetta fór veikin að stinga sér niður hingað' og þangað í sveitinni og rnenn gátu rakið, að þeir sem veiktust höfðu flestir komið þarna á heimilið, eftir að veik- in var afstaðin, og kendu því um, að ekki hefði verið sótthreinsað þar nógu vel. En í þessu lá þannig: Lotlega stúlkan vissi, að hún hafði legið í taugaveikí og ekki verið sótthreinsuð, vissi að hún gat borið veikina. Hún sýkti alt heimilið og varð tveimur manneskjum að bana. Þetta komst upp, en henni var ekkert gert. Ef hún hefði kveikt í bænum á næturþeli, þá hefði almenningsálitið grýtt hana og dómarinn sett hana í svart- holið, þó að allir hefðu komist óskaddir út úr eldinum.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.