Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1908, Side 53

Skírnir - 01.08.1908, Side 53
Taugaveiki. 246 Sama er að segja um kaupstaði, er hafa grunna og slæma brunna að vatnsbólum og enga eða illa fráræslu. Þar fyllist jarðvegurinn smátt og smátt af taugaveikis- gerlum og þaðan skolast þeir við og við inn í brunnana t. d. í haustrigningunum. Veikin verður landlæg. Þetta á við Reykjavík. Þetta átti við um ísafjörð. Þar hætti taugaveikin, þegar hrunnarnir voru byrgðir og vatni veitt inn i bæinn úr lindum uppi í fjallinu. Hér mun hún hverfa að mestu þegar vatnið kemur ofan úr Gvendar- brunnum. Og það ætti að vera ofurauðvelt að tryggja sér þaö, að sóttkveikjur komist aldrei í þær uppsprettur — fjarri allri mannabygð. Loks má geta þess, að sóttkveikjan getur borist í m j ó 1 k. Ef mjólk er seld af heimili, þar sem taugaveikí gengur, þá er auðskilið að sóttkveikjan getur á ýmsan hátt borist í mjólkina, ef sóðalega er farið með hana. Mest er hættan, ef sóttkveikjan er í neyzluvatni heimilisins og mjólkin vatnsblönduð (svikin) eða ílátin þvegin úr ósoðnu vatninu. Þetta getur átt sér stað. Það kom fyrir í kaup- túni hér á landi eigi alls fyrir löngu. Algengt er það ekki. Fyrrum var það hald manna, að sóttkveikjan bærist oft i loftinu, t. d. sveimaði í andrúmsloftinu inni í sóttarherbergjum og bærist þannig niður í lungu manna eða með munnvatninu niður í magann. Það má vera að þetta geti átt sér stað. En það hlýtur að vera sjaldgæft. Annars mundu læknar og hjúkrunarkonur sýkjast miklu oftar en raun er á. Hvernig veíkin Taugaveikin er hamhleypa. Hún á mörg lýsir sér. gervi og þau mjög ólík hvert öðru. Og hún getur brugðið sér í líki ýmsra ann- ara sjúkdóma. Þess vegna er oft mjög örðugt að þekkja hana og greina hana frá öðrum sóttum. Margir alþýðu- menn halda, að hver sótt hljóti jafnan að vera sjálfri sér lík, einkennin ávalt söm. Ef þeir hafa séð taugaveiki einu sinni, þá halda þeir, að öll taugaveiki hljóti að vera

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.