Skírnir - 01.08.1908, Síða 62
2ö4
Taugaveiki.
eiulægt vera að drekka, eins mikið og hann lysti; og eg
hefl séð þakklætið skína út úr augum sjúklingsins og horft
á hann renna hróðugu hornauga til fólksins og lesið út úr
huga hans: »þarna getið þið séð ; eg m á drekka«. Fólkið
gerir þetta auðvitað í bezta tilgangi, að halda í vatnið,
meina sjúklingi, sem liggur i taugaveiki að drekka kalt
vatn. Og þessi bezti tilgangur er afaralgengur, en öldungis
rammvitlaus.
Sjúklingurinn þarf aðdrekka, áaðdrekkaogdrekkamikið.
Meira en helmingur af líkama mannsins er vatn. Vatnið
er því lífsnauðsyn. Það er einn hinn versti dauðdagi, að
deyja úr þorsta.
Við látum vatn niður í magann í flestum mat; og við
drekkum það, ýmist óblandað, eða blandað ýmsum efnum
til smekkbætis, hressingar eða næringar; en beztur svala-
drykkur er hreint, kalt vatn.
Vatnið fer úr meltingarfærunum inn í blóðið og um allan
líkamann. Það fer aftur út úr blóðinu og út úr líkaman-
um gegnum nýrun (þvagið), húðina og lungun. Þegar það
kemur út úr líkamanum, eru í því mörg úrgangsefni, sem
líkaminn þarf að losna við.
Ef sótteitur er í blóðinu, þá fer það út úrlíkamanum
með vatninu (mest í þvaginu).
Þvi meira sem sjúklingurinn drekkur, þeim mun meira
vatn fer inn í blóðið og út úr því aftur, og þeim mun
meira skolast burtu af sótteitrinu úr líkamanum.
Það er því ein hin mesta og bezta hjálp, sem veitt
verður þessum sjúklingum, að iáta þá drekka sem allra
mest af hreinu köldu vatni, til þess að sótteitrið (úr
Eberth’s-gerlunumj safnist sem minst fyrir, skolist sem
mest burtu úr likama þeirra.
Sjúklingurinn fær mjólk; i henni er vatn; en það er
ekki nóg. Segjum hann drekki 2 potta af mjólk á sólar-
hring; þá er bezt að hann drekki þar að auki 2 potta af
hreinu köldu vatni; það vcrða 4 pottar í alt. Og má vera
meira, upp í 6 potta.
Það er óþarfi að blanda drykkjarvatn sjúklingsins;
en mörgum sjúklingum finst vatnið svala sér betur og: