Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1908, Side 67

Skírnir - 01.08.1908, Side 67
Taugaveiki. 25'J Kirna er tekin undir öll óhreinindi sjúklingsins og höfð í framhýsi á afviknum stað. I næturgagn sjúklings- ins og hrákabolla er látið kresólsápuvatn eða karból- vatn eða annar sótthreinsunarlögur, jafnmikið og fyrir er í ílátuuum; siðan er helt úr þeim í kirnunn. Þegar sjúklingnum er þvegið, er þvottaskolpið blandað á sama hátt og helt í kirnuna. Þar verður þetta að standa 4 stundir eða lengur, áður en út er helt, og er bezt að grafa djúpa holu úti á túni, langt frá vatnsbóli, og hella í hana. Ef sótthreinsunarlyf eru ekki til, eða þrjóta, þá má safna öllu þessu í pott, setja hann yfir eld, er hann fyllist, láta sóda í (hnefafylli), ef til er, og sjóða hálfa stund, hella síðan út. Pottinn má vel hreinsa siðar, svo að ekki saki. Nærföt sjúklingsins og voðir og ver úr rúminu eru tekin óðara en á þeim sér, soðin í vatni l/2 stund og siðan þvegin. Fatnaðinn má láta i vel heldan stamp, hella vatni yfir og geyma, þar til sótthreinsað verði í sótt- hreinsunarlegi eða suðuhita. Gólf eru þvegin daglega, en aldrei sópuð þur. Þess er gætt að ekki atist rúmstæði sjúklingsins eða veggurinn við rúmið og óðara þvegið, ef til ber. Sjúklingurinn fær sérstök matarílát; aðrir skulu ekki eta úr þeim; og þau skal þvo sér úr sjóðheitu vatni. Þetta er þá allur vandinn. Hann er ekki mikill og kostnaðurinn því minni. Hitt er mikið, sem upp úr þessu hefst. Skynsamleg meðferð á sjúklingnum og sífeld sótthreinsun á óhreinind- um hans ber venjulega þann dýrmæta árangur, að sjúk- lingurinn lifir, en sóttkveikjan drepst, svo að engir aðrir taka sóttina. En hvað á þetta lengi að ganga? Hvenær hættir útferð sóttkveikjunnar (Eberth’s-gerlanna) úr líkama sjúklingsins ? Venjulega er sóttkveikjan með öllu horfin úr líkama sjúklingsins, þegar hálfur mánuður er liðinn frá því er 17*

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.