Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1908, Side 70

Skírnir - 01.08.1908, Side 70
262 Jónas Lie. í æsku heillaður af þeim. Heflr hann í skáldsögunni »Den Fremsynte« (Davíð skygni) lýst æskustöðvum sínum og mörg beztu æfintýri hans eiga rót sína að rekja til sagna, er hann hefir heyrt þar í æsku. Foreldrar Jónasar voru bæði vel að sér og létu sér því ant um, að sonur þeirra lærði eitthvað. En fram eft- ir aldri var því ekki að hrósa, því að hann var mesti slóði við alt nám. Þegar hann gekk í barnaskóla, þurfti hann einlægt að staldra við og »góna og glápa« á hvað eina sem fyrir augun bar, að því er honum segist sjálfum frá. Var hann þvi oft 1—2 stundir á leiðinni í skólann, þótt það væri ekki nema 10 mínútna gangur. Ekki tók betra við, er hann var settur í unglingaskólann. Hann var jafnlatur og áður, en var nú drjúgum barinn fyrir letina. Loks var hann settur i latínuskólann í Björgvin, en námið gekk þar og ærið skrykkjótt og bekkjabræðrum hans þótti hann fáfróður og ankannalegur um marga hluti. En tvent var það sem aflaði honum álits hjá skólabræðrum sínum. Hann var einhver mesti áfloga- kragi og kunni að segja vel og skipulega frá ýmsu, sem hann hafði séð eða heyrt. Þessi ár fór hann að bera við að yrkja, en ljóð hans fengu lítinn byr hjá félögum hans. Eftir 4 ára skólaveru fór hann úr skóla og var nú send- ur til Kristjaníu til Heltbergs gamla. Hann var kennari með afbrigðum og þótti geta gert hvern letingja eða lið- létting að stúdent. Svo fór og hér. Þegar Jónas hafði dvalið '/-2 ár á stúdentaverksmiðju Heltbergs, tók hann stúdentspróf með 2. einkunn. Björnstjerne Björnson var Jónasi samtiða hjá Helt- berg gamla. Fór Jónasi sem mörgum öðrum félögum Björnsons í þá daga, hann varð heillaður af snild og höfðingsskap hins »fráneyga og stórhuga leiðtoga«, en Björn- son batt vináttu við Jónas og glæddi með stakri nærfærni trú Jónasar á skáldskapargáfu sína. Hefir Jónas í bréfl til Björnsons sjálfur skýrt frá því, hversu rík og víðtæk áhrif BjÖrnson hafi haft á sig.

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.