Skírnir

Årgang

Skírnir - 01.08.1908, Side 72

Skírnir - 01.08.1908, Side 72
264 Jónas Lie. mikið um dýrðir á heimilinu, ekki sízt þegar Ole BulE tók fiðluna sína og heillaði áheyrendurna með tónum sínum. En féglæfrarnir og gróðabrallið, sem fyr var vikið að, fór vaxandi og Jónas Lie var engan veginn eins varkár og forsjáll sem skyldi. Hann flæktist inn í margvíslegar ábyrgðir og viðskifti, sem voru í mesta máta ótraust, og þegar hrunið reið að, sogaði fjárþrota-hringiðan hann i sig. Hann misti aleigu sína og stóð uppi með tvær hend- ur tómar, konu og þrjú börn og skuldir, sem námu um 1 miljón króna. Á ferð til Kristjaníu vorið 1868 skýrði Jónas konu sinni frá, hvernig komið væri fyrir sér. Hann var magn- þrota á líkama og sál og honum fundust öll sund lokuð. Það er bágt að segja, hvað hann hefði tekið til bragðs, hefði hann ekki átt þá konu sem hann átti. Hún hug- hreysti hann, lagði niður fyrir honum, hvernig þau gætu dregið fram líf sitt og barnanna og hvatti hann til að gefa sig nú nær einvörðungu við skáldskapnum. Með þeim fasta ásetning að rétta aftur við hag sinn fiuttist Jónas um haustið til Kristjaníu. Þungt var hon- um í skapi, er hann hugleiddi framtíðarhorfurnar, en sár- ast sveið honum þó að geta ekki borgað hverjum sitt og mörg ár bjó skuldasúpan honum angur og trega og lét bann ala aldur sinn fjarri fósturjörð sinni. Ekki er hitt síður merkilegt og eínkennir allvel manninn, að mörg ár reyndi hann eftir mætti að grynna á skuldum sínum, þar til vinir hans leiddu honum fyrir sjónir, að það væri ókleift verk. En hins getur sagan ekki, hversu hann tók sér nærri að láta af þessari tálvon. Eins og búast mátti við, átti hann í fyrstu erfitt upp- dráttar og varð að leggja fyrir sig blaðamensku, tima- kenslu og fasteignasölu. Auk þess var hann einkaritari Jóhans Sverdrups, stjórnmálamannsins mikla, og bar úr býturn fyrir það 25 spesíudali á mánuði. En í tómstund- um sínum fór hann að semja skáldsögu, sem kom út um jól 1870 og gerði hann í skjótri svipan frægan um

x

Skírnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.