Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 76

Skírnir - 01.08.1908, Page 76
268 lónas Lie. varð af alhuga henni fylgjandi. Fór hann eins og önnur skáld um þær mundir að ræða ráðgátur lífsins og leita úrlausnar á þeim. Verða hér að eins taldar nokkrar hinar helztu skáldsögur hans frá þeim árum og drepið ofur- stuttlega á efni þeirra. I »Familien paa Gilje« lýsir hann lífi embættismanna til sveita og fjölskyldna þeirra og talar þar drengilega máli dætranna og húsmæðranna. Bókinni var mæta vel tekið, og Arne Garborg telur í minningarriti sínu um Jónas Lie, að með skáldsögu þessari hafi Jónas fyrst náð föstum tökum á almenningi og orðið eftii’lætisskáld hans. Vera má þó, að Garborg taki nokkuð djúpt í árinni. I »Kommandörens Dötre« lýsir skáldið æfiferli tveggja systra. Þær bera skarðan hlut frá borði lífsins, af því að tildrið og tizkan bannar þeim að njóta manna þeirra sem þær unna. Niðurlag bókarinnar er einkar hjartnæmt og yndis- fagurt. Líður það trauðla þeim úr minni, sem hafa einu. sinni lesið það. »Et Samliv« greinir frá hjúskap einna hjóna. Þau lifa saman eins og fólk flest, en hjónaband þeirra er að eins líkamleg sambúð, en ekkert sáluneyti. Á silfurbrúðkaups- degi þeirra opnast loks á þeim augun og þá skiftast þau á þessum alvöruþrungnu orðum: »Hjónunum er eins farið og dýrunum,« segir hús- freyja, »drottinn hefir varriað þeim málsins. Þau geta orðið til hvort við annars hlið!« Og bóndi hennar svarar eftir stundarbið: »Vera má að eg hafi verið — flón — sannkallað flón . . . Þú hefir ekki átt sjö dagana sæla hjá mér, vesalingur, það er öðru nær; eg sé það nú . . . En, — eg kom svo oft með harm eða hlátur í huga, til þess að halla höfði að barmi þínum og gera þig hluttakandi í hrygð minni eða kæti, — en þú varst þá vant við látin eða áttir ýmsum öðrum störfum að gegna. — Með því móti venst maður við að fara einförum . . . Og þá er nú úti um samlífið.« I skáldsögunni »Niobe« lýsir Jónas Lie hinni uppvax- andi kynslóð, eins og hún kom honum þá fyrir sjónir.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.