Skírnir - 01.08.1908, Page 79
Stikukerfið.
'i'll
víeri tekin upp í Belgíu, raeð því að frakkneska var (og
er enn) aðalritmál þar í landi.
::Aðalástæða stjórnarinnar fyrir því, að taka upp útlend
heiti á máls- og vogareindum feiningum) stiku-(»metra< -)
kerfisins er sú, að þau veiti hægðarauka í viðskiftum við
útlendinga. En þessi ástæða er ekki nærri því eins mik-
ils virði og sýnast kann í fljótu bragði, því að það nær
engri átt að »metramálsheitin« eintóm nægi til þess, að'
menn af ýmsum þjóðum geti skilið hver annan eða við-
skifti þeirra gengið greiðlega — þar þarf sannarlega meira
til, eins og ljóslega var sýnt íram á í »Ingólfi« um þing-
tímann, og stendur það alt enn óhrakið. Þar sem vitnað
er si og æ til ýmissa orða, er komið hafi frá útlöndum
með kristninni, svo sem biskup, kirkja o. s. frv., þá sýna
þau einmitt, hversu hæpið það er, að slík aðkomu-orh
verði að nokkru liði í viðskit'tum þjóða, því að hver tunga
hefir breytt þeim eftir sínu eðli, og það svo, að Frakkar
skilja ekki, hvað vér eigum við, þegar vér segjum biskup,
og vér ekki, hvað þeir eiga við, er þeir segja evéque, þótt
alt sé sama orðið upphaflega. Eigi munu Englendingar
heldur skilja, hvað vér eigum við með orðinu kirkja, og
vér ekki heldur orðið church hjá þeim, ef vér höfum ekki
numið enska tungu. Sumir, sem taka vilja upp útlendu
»metramálsheitin«, kannast þó við það, að íslenzkunni
mundi eðlilegast, að breyta »kilometer« í »kílmeter«r
»kilogram« í »kílgramm«, og eins mundi »mílmetur« og
»mílgramm« vera samkvæmara islenzku tungutaki en
»miliimeter» (»mílimetri«) og »milligram« (»míligramm«).
En með slíkum breytingum mundi tapast sá ú 11 e n d i
hljómur og hreimur, er mestu máli þykir skifta í
þessu efni. Upptaka útlendra orða í íslenzku til að laga
sig eftir útlendingum er sannarlegt neyðarúrræði, enda
mun varla nokkur halda því fram, að vér þurfum endi-
lega að taka upp í mál vort útlend nöfn á öllum þeim
vörutegundum, sem ganga kaupum og sölum milli vor og
útlendra þjóða, til hægðarauka i viðskiftalífinu.