Skírnir - 01.08.1908, Page 80
272
Stiknkerfið.
Með því að orðin breytast þannig með ýmsum hætti,
er þau ganga frá einni tungu til annarar, og einstök orð
nægja eigi til þess, að menn af ýmsum þjóðum geti gjört
sig skiljanlega hver fyrir öðrum, hafa margar tilraunir
verió gjörðar til þess á vorum dögum, að búa til alþjóða-
mál, er gæti komið að fullum notum í öllum viðskiftum
þjóða á milli, og staðið samsíða þjóðtungunum, er sam-
landar mundu nota sín á milli eftir sem áður. Engin af
þjóðtungum heimsins hefir þótt eins vel fallin til að verða
slíkt alheims-hjálparmál, eins og hið nýmyndaða milli-
þjóðamál »Esperanto«, sem er nú farið að ryðja sér til
rúms víðsvegar um hinn mentaða heim. í slíkt alþjóða-
mál eru sjálfsagt tekin upp heitin á eindum frakkneska
tugakerfisins (stikukerfisins) með endingum þeim, sem við
það mál eiga, og þar geta þau sómt sér vel og komið að
góðum notum, þótt þau láti illa í eyrum íslendinga og sé
lítt eða ekki skiljanleg útlendingum innan um ís-
lenzk orð af íslenzkum v ö r u m. Þá er »Es-
peranto« er orðið alment viðskiftamál helztu mentaþjóð-
anna, ætti fiestum Islendingum að nægja það mál eitt
auk móðurmáls síns, og væri þá óþarft að taka upp í
íslenzkuna einstaka bálka af alþjóða-orðum, enda mundi
það hvorki geta orðið verulega notadrjúgt fyrir sjálf við-
skiftin við útlendinga, né affarasælt fyrir vöxt og viðgang
móðurmálsins.
Það er ekki heldur rétt, að tuga- eða stikukerfið sé
leitt hér í lög eingöngu vegna viðskiftanna við út-
lönd, því að aðalástæðan hlýtur hér sem annarstaðar að
vera sú, hvað það er þægilegt í öllum reikningi, og kemur
sá kostur eigi síður að haldi í viðskiftum innanlands, og
þar er miklu tilhlýðilegra, viðkunnanlegra og þægilegra
að hafa innlend heiti en útlenzk. Allir sjá t. d., hvort
hentugra er að nota í ijóðum »röst« eða »kílómetri«,
»rastarsteinn« eða »kilómetersteinn«
Dæmi forfeðra vorra, sem meðmælendur útlendu heit-
anna hafa oft haft á hraðbergi, votta það, að þótt þeir
itæki stundum upp útlend heiti á táknunum vogar og máls,