Skírnir

Volume

Skírnir - 01.08.1908, Page 96

Skírnir - 01.08.1908, Page 96
288 Erlend tiðindi. einu í Bajern. Þar hafSi verið gengið óvarlega frá legufærum, en stórviðri var, og slitnaSi flugbelgurinn upp, laskaðist og kviknaSi i, sprakk þá og ónyttist gersamlega á svipstundu. Parþegar voru hvergi nærri og varð því ekkert manntjón. En slysið var metiS þjóðar-mótlæti og efnt til almennra satnskota að bæta greifanum skaðann. Þau urSu 3 miljónir ríkismarka á fám vikum. Upp var tekiS í sumar af nýju málið milli Maximilian-Hardens og E u 1 e n b u r g s greifa í Berlín, og greifanum stefnt um ,meinsæri og að hafa tælt aðra til meinsæris, í málinu um saurlífis- glæp þann, er M.-H. hafði að honum dróttað. Yitni gengu í móti honum. En þá varS að fresta málinu vegna veikinda Eulenburgs. P e a r y hinn ameríski, norðurfarinn heimsfrægi, er fann fyrir nokkurum árum að Grænland er eyja og komist hefir allra manna næst norðurheimskauti (87° 6’), lagði af stað enr, af n/ju i sumar, 17. júlí, í sömu erindum sem áður. Skipinu, Roosevelt, heldur hann svo langt í haust, sem flotiS getur, en hugsar að nota vetur- inn til sleSaferSa beint norður að heimsskauti. Endist honum þaS ekki, hverfur hann aftur og hefst viS á skipinu næsta sumar, en leggur á stað annan vetur á sleðum meS sama hætti og áður. Nú mun vera til skarar skriðið í Marokko með þeim bræðrum Abdul Aziz soldáni og Mulay Hafid, er hafa ázt ilt við undanfarin missiri. Abdul Aziz hefir farið halloka og hröklast af stóli fyrir bróSur sínum og uppreistarliðinu, — beiS algerðan ósig- ur í snarpri orustu, þar sem heitir Makaresch, seint í sumar. Skortir nú eigi annað en viðurkenning stórveldanna á soldánstign Mulay Hafids. Heldur hnekkir þetta Frökkum, er studdu Abdul Aziz. Framgengt varð á þingi Breta í sumar ellistyrksný- m æ 1 i hinu mikla til handa fátæku alþýðufólki hálfsjötugu eSa þaSan af eldra. Efri málstofan lá við að feldi það. En lávarð- arnir óttuðust svo megnan fjandskap verkmannalýðsins, að naum- ast yrði við vært, og kusu heldur að samþykkja frumvarpið. Jónas L i e, þjóðskáldið norska, andaðist í sumar, 7. júlí, hálf- áttræður.

x

Skírnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skírnir
https://timarit.is/publication/59

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.