Tímarit - 01.01.1870, Blaðsíða 94
96
hann. Er og auðséð á Landnámu (Iímh. 1822. bls.
230. 5. P.) að söguritarinn hefir ekki vitað hvað son
Áskels hét, sá er »reysti fyrst bæ á Völlum». En
þegar liann ritaði »móðir Valla Brands» mundi bann
hafa viljað rita: föður móðir, en sést yfir það og því
hafa seinni afskrifarar bætt nafninu: »Brandur» inn í,
á undan »hans son» á áður nefndum stað (sbr. sömu
bls. neðanmáls).
Þá er að reyna hvernig tekst að koma þeim sam-
an Eilífi og Haldóru. í*að er auðséð að þeir Ketill ein-
hendi eru einna fyrstir landnámsmenn á Rángárvöllum,
eptir Ketil hæng, því aðrir námu síðan land »með ráði
Iíetils einhenda». Munu þeir mágar hafa komið út
kringum 890, hefir Ketill þá verið á sextugs aldri, og
fyrir nokkru giptur seinni konu sinni Ásleifu Þorgils-
dóttur. Hefir Þorgils þá verið roskinn en Þorsteinn
liáaldraður (máske kenníngarnafn hans bendi tii þess að
hann yrði ellmóður: lúnan = lúnaður = lúinn? nema
»lúnan» sé írskt nafn, og hafi þeir komið vestan um haf,
sem vel getur verið). Ilafi Þorsteinn þá verið nær áttræðu,
en Þorgils fimtugur, gæti Ásleif hafa verið á þrítugs-
aldri. Léti nærri að Eilífur væri fæddur skömmu fyrir 890
kemur það vel heim við aldur Hjalta Skeggjasonar, er var
þriðji maður frá Eilif (Eilífur, Þorgeir, Skeggi, Hjalti), kæmi
þá sem næst 26 vetur á lið. Það er nú ekki hægt að
gizka nákvæmlega á aldur Iíonáls. Eptir því sem ætl-
að er á aldur Ketils einhenda hér að framan, er hann
á rek við Ófeig gretti, og kemur það vel heim við hitt
að bræðrungar þeirra, Ketill örriði og Óleifur breiður
eru jafnliða, upp éptir frá Bjarna spaka, því mætti ætla
að Konáll væri á líku reki, þó getur hann verið tölu-
vert yngri; samt er líkara að Aldís sé seinni konu barn