Gangleri - 01.08.1870, Qupperneq 2

Gangleri - 01.08.1870, Qupperneq 2
2 steinninn fellur til jarðar, gjörir og hitt, að tunglið held- ur braut sinni kring um jörðina, og að jörðin og ailar pláneturnar halda brautum sínum kring um sólina. En þekking vor í þessu efni nær langt út yfir takmörk sól- kerfis vors; þvf að vjer getum sjeð hversu hinar fjar- lægustu stjörnur fylgja hinu sama lögmáli. En eins og kraptarnir eru hinir sömu hvervetna í alheiminura, eins hljóta þeir og að vera sömu lögum háðir hvervetna; hið sama innbyrðis samband, er vjer bentum á (f 1. hepti Ganglera) að ætti sjer stað milli þeirra hjer á jörðunni, það hlýtur og að eiga sjer stað milli þeirra alstaðar. Mörgum mun kunnug kcnning sú um uppruna sólkerfanna, sem Laplace fyrst skýrði fyrir mönnum. Jónas Ilallgrímsson hefir sagt frá henni í rit- gjörð sinni: „Um eðli og uppruna jarðarinnar“, sem prentuð er í 1. ári Fjölnis, og munum vjer því að eins fara stuttlega yfir hana hjcr. Eptir þessari kenningu var allt það efni, sem nú er í hnöttum sólkerfis vors, npprunalega í einum þokuhnetti, og var hann miklu meiri að þvermáli, en allt það rúm er sólkerfið nú fyll- ir; hann var því fjarskalega laus f sjer og Ijettur, svo að menn hafa reiknað, að margar milljónir teningsmílna af þessu cfni hafi ekki vegið nema 1 „gran“. Fyrir sam- dráttaraflið milli hinna einstöku smáparta þessa þoku- hnattar þjettist hann smámsaman, en við það hlaut eptir lögmáli hreifingaraflsins snúningur sá, sem upphaf- lega var á þcssum mikla hnetti, að veiða með meiri hraða. Mestur varð snúningshraðinn um miðbik hnatt- arins, og því mest miðflóttaaflið þar; hnötturinn gekk því meir og meir saman við möndulendana, því að þar var kastið ekkert á hnettinum, en tútnaði út um miðj-

x

Gangleri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.