Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 7

Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 7
7 reikningi, hversu mikill hiti, og þá einnig, hversu mik- ið afl, getur kviknað í líkamanuin af hverri fæðu sem er A f I i ð í líkamanum myndast því á sama hátt, og í gufuvjelinni, en í því greinir þau á, að líkaminn þarf annað eldsneyti en vjelin; það verður sem sjc að vera svo lagað, að meltingin geti unnið á því, og uppleyst það, svo það geti komizt inn í blóðið; og í annan stað hefir eldsneyti líkamans, fæðan, meira ætlunarverk en eldsneyti vjelarinnar, því að fæðan á ekki að cins að kveikja afl iíkamans, heldur er og nokkur hluti hennar ætlaður til þess að endurnýja ýinsa parta líkamans jafn- ótt og þeir slitna, en það er þó minni hluti hennar; meiri hlutinn gjörir sömu not í líkamanum, og eldsneyt- ið í gufnvjelinni, og ef vjer gætuin m e 11 steinkol, þá gætum vjer haft sömu not af þeim og þessum hluta fæðunnar. Nú á hvorttveggja, dýrafæðan og kolin, eða hvert annað eldsneyti sem er, uppruna sinn að rekja til grasa- ríkisins. Að vísu lifa sum dýr eingöngu af öðrum dýr- um, og maðurinn lifir sumpart af dýruin, en hold og blóð þessara dýra, sem höfð eru til átu, er þó upprunalega myndað úr urtaefni. Maðurinn getur t. a. m. ekki lifað af grasi eða heyi, en hann getur lifað aí dýrum, sem aptur eingöngu lifa af grasi og Iieyi. Grösin crn þann- ig grundvöllur alls dýralífs, en sjálf nærast þau ein- initt af efnum, sem myndast við brennsluna og við nær- ingu dýranna. Vjer munum, að við andardráttinn mynd- aðist kolasýra, vatn, og BAminoniak“; hvert þessara efna er samansett úr 2 frumefnum, og úr hverju þeirra taka grösin annað frumefnið sjer til næringar, en skilja hitt eptir. Pó geta grösin ekki gjört þetta af cigin ram-

x

Gangleri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.