Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 18

Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 18
18 sýnir burtför presta frá brauðum, miklu framar en gjört er, og eins í prófasta talinu að taka fram það ár, er þeir hafa sleppt prófasts embættinu. Hefði hinn heiðraði höfundur hagað svo presta tali sfnu, j>á hefðum vjer í ártölum fengið miklu fyllra æfiágrip margra presta, en nú er eptir „Prt.“. í athugasemdum við „Prt.“, sem flestar munu vera frá annari hendi, felst mikill fróðleikur, en sumt er þó þar, sem eigi þykir svo mjög vera til skýringar þeim atriðum, sem menn ætlast til þess að fræðast um af bókinni. Þannig er t. a. m, í neðanmálsgrein (bls. 4.) skýrt ná- kvæmlega frá afgjaldinu af bænahúsinu að Brú á Jökul- dal, en með því að slíkt eru sjerstaklegar tekjur Hof- teigs prestakalls, og annars staðar eru eigi taldar sjer- stakar tekjur brauða, þá virðist, sem eigi væri ástæða til að geta þess. Annars er, hvað bænahús snertir, talsverð ósamkvæmni í bókinni. Sumstaðar er þeirra bænahúsa eigi getið, sem enn er embættað í, svo sem á Melgras- eyri á Langadalsströnd, á Ketilstöðum á Völlum, og í Papey; en sumstaðar er aptur skýrt frá niðurlögðum bæna- húsum, einkum neðanmáls. Bænahús að Ilöfnum á Skaga er talið svo, sem enn framfari þar guðsþjónustugjörð, en í brauða skýrslunum 1854 segir, að eigi sje messað þar (Landli. sk. II, 764.), og veit jeg eigi til, að það hafi tekizt upp aptur. Þó að sPrt.“ eigi sje alls kostar óyggjandi á fyrri öldum, og að það að fleiru leyti sje eigi svo nákvæmt og fullkomið, sem ákjósanlegt hefði verið, eins og sýnt hefir verið fram á, þá er það þó engu að síður mikils vert og nytsamt rit, l*að er ágætur leiðarvísir fyrir hvern þann, er ann þjóðlegum fræðum, til þess að átta sig

x

Gangleri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.