Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 23

Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 23
23 styðjast; því cr það málefninu rnikið til hnekkis, að hið fyrirheitna eriiuiisbrjef frá landlækninum, eða „rcgiugjörð- arbrjef", er hann kaliar, ekki hefir komið út; og sömu- leiðis það, að ekkert varð úr þeim ásetningi hans, að hreifa málinu á alþingi í fyrra sumar. Af brjefa viðskiptum amtmannsins í Norður-og Austuramtinu og stiptamtmannsins er ijóst, að hinn síð- arnefndi hefir eigi verið máli þessu hlynntur, og er það skaði þegar æðstu yíirvöld landsins láta sjer jafnlítið annt um annað eins nauðsynjamál, og hjer ræðir um, sem svo mjög varðar allt, landið. I’egar staðhæft var í brjefum og blöðum, að misl- ingasýkin væri komin suður í Skaptafellssýslu haustið 1869, tók amtmaður Havstein, sem fylgt heíir máli þessu með þeim kjark og dugnaði, sem honum er laginn, að skora á stiptamtmanninn, að koma heilbrigðisnefnd- um á í Suðuramtinu, með fram til að hindra framrás sýkinnar á þann bóginn, þá staðhæfa þeir, stiptamtmað- uiinn eptir landlækninum og landlæknirinn eptir sk/rsl- um, er hann hafi fengið, að sýkin sje þá enn ekki kom- in inn í Suðuramtið. fá þykist og stiptamtmaður, „eptir að hafa borið þetta undir ýmsa lækna, ekki geta fundið neina trygg- ingu“ í heilbrigðisnefndunum, en kveðst þó hafa í hyggju, að gjöra áþekka ráðstöfun í Suðuramtinu, þá er líklegt þyki, að því verði framkomið, seigi að eins á pappírn- um, heldur svo, að það verði að verulegum notum“. fetta eru þær undirtektir, er heilbrigðisnefndamálið heiir fengið hjá stiptamtinu. Yjer erum vissir um, að allur fjöldimanna í Norð- (/• framkvœmdir þeirra í inislintjatýlcinni.

x

Gangleri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.