Gangleri - 01.08.1870, Blaðsíða 17
17
Æskilegt hefði verið, að höf., sem framast unnt var,
hefði tekið upp í prestatalið kapellana, eins og hann
sumstaðar hefir gjört, en hvervetna auðkennt þá frá
sóknarprestinum, t. a. m. með smærra letri. — Eins hefði
þótt vel lilýða, að hann í athugasemdum hefði getið
Jiess um presta, er misst hafa embætti, en fengið aptur,
hve lengi þeir hafi verið prestlausir. — Einnig hefði
hann átt, til þess að vera sjálíum sjer samkvæmur, og
til almenns fróðleiks auka, að telja ahtaðar þá presta,
eða þá menn, þótt aldrei hafi þeir prestar orðið, er
fengið liafa veitingu fyrir brauðum, en eigi komið til
þeirra. — Viðkunnanlegra hefði mjer þótt, að fæðing-
ar ár presta hefði verið til greint í dálki sjer, held-
ur en að setja þau á stangli neðan máls, og þá liefði
dálkurinn um „aldurs ára, sem venjulega mun byggjast
á einfaldri frádragningu og eigi vera nákvæmur, getað
alveg fallið burtu Af „aldurs ára“ dálkinum getur engi
nákvæm vissa fengizt um fæðingar árið, en fæðingar
árið hefði víða hvar getað staðið fast og óhagganlcgt.
Dálkurinn utn „embættis ár“ sýnist fremur til uppfyll-
ingar enn uppbyggingar, því hvert manns barn, sem
vit hefir á að færa sjer „Prt.“ í nyt, sjer undir eins £
hendi sjer embættis árin, um leið og hann sjer tölurnar,
er sýna vígslu ár presta og það ár, er þeir hafa vikið
eða fallið frá. Auk þess mun eigi lítil ónákvæmni eiga
sjer stað hjá höfundinum í þeim dálki, bæði að því Ieyti,
að varla, eða óvíða, mun tekið tillit tii, um hvaða
leyti árs prestskapurinn hefir hafizt og cndað, og svo
einnig hvað þá presta snertir, er settir hafa verið frá
cinbætti um hríð. Enn fremur hefði mátt og þurft, cins
og J. S. bendir til í formálanum, fylla þann dálkinn, sem
Gaugleri III. hepti. 2