Gangleri - 01.08.1870, Side 3

Gangleri - 01.08.1870, Side 3
3 una, þangað til að miðflóttaaflið þar varð yllrsterkara miðsóknaraflinu, þá ldaut þar að losna hringur utan af frumhnettinum, sem allt af hjelt áfram að þjettast. En hinir einstöku partar þessa þokuhrings drógust og sam- an innbyrðis, og við það hlaut hringurinn að slitna og dragast saman í hnött, sem liafði tvöfalda hreifingu, sem sje um möndul sinn, og í kring um hinn stærri hnött- inn. fetta gekk nó koll af kolli, og þannig hafa allar jarðstjörnur í sólkerfi voru smátt og smátt losnað utan af sólinni. Sumar jarðstjörnurnar hafa aptur myndað hringa og þeir hringar orðið að hnöttum, og þannig eru tunglin undir komin; en á einum stað hefir efnið í hringn- nm, þegar hann Iosnaði, verið orðið svo þjeít, að hring- urinn ekki gat slitnað og orðiö að hnetti, eins og sjá má við Satórnus. Með því að nó allt það e f n i, sem nó er í sól og jarðstjörnum, einu sinni var sameinað í einum þoku- hnetti, þá hljóta og hinir sömu kraptar að hafa fylgt efninu þá í einhverri mynd, sem enn fylgja því. Hinn upprunalegi kraptur var aðdráttaraflið, hið sama, er enn kemur fram hjer á jörðinni sem þyngd, og sem í him- ingeimnum æ og ávallt leytast við að nálægja hnettina Iivcrja öðrum. Hvort fleiri öfl enn aðdráttaraflið upprunalega hafi verið til, er óvíst, enda má það cinu gilda; því að hversu sem því er varið, þá hefir aðdráttaraflið eitt sam- an þá jafngilt miklu meira vinnumagni, enn nó er að finna í öllu sólkerfinu. Menn hafa talið svo til, að allt það aðdráttarafl, er nó er til í sólkerfinu, sje að eins jI-j. af því, er upphaflegi þokuhnötturinn hafði. Hugsi Gangleri III. hepti. 1

x

Gangleri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.