Gangleri - 01.08.1870, Side 12
12
Eins og prestatalið á Bcrgstöðam verður eptir þcssu
hvorki sem rjettast nje fullkomnast í „Prt.“, svo má ætla
að víðar sje á þeim tímum, en jafnframt gefa skjölin í
„Tr.“, er að því lúta, oss gúðar vonir um, að margt
fleira muni meiga lagfæra og fylla, ef alúð er lögð við,
að komast fyrir sannleikann.
I handiiti því af prestatali, sem áður var getið,
eru í prestaröðinni taldir ýmsir prestar, sem eigi er getið
í „Prt.“. Munu sumir þeirra vera kapellánar, og sumir
með öllu rangtaldir, og því með ásettu ráöi sleppt í
nPrt.“, en eitthvað kann þó rjett í að vera. Yil jeg
hjer telja þá, ef það kynni að geta orðið einhverjum til
athuga eða leiðbeiningar, er þetta mál rannsaka, og svo
má og sjá af því, hversu prestatal hefir mjög verið á
reiki. Eru þeir þessir:
Melstaður: Sveinbjörn, 84 ára, 1460—1490.
Tjörn á Vatnsnesi: Jón, var hjer 1588.
Breiðabólstaður í Vesturhópi: Einar Benidiktsson (fyrir
1543, einnig á Grenjaðarstað).
Þingeyrar: Jón Þórðarson, 1642.
Ilöskuldsstaðir: Styrkár Ilallsson (fyrir 1566; síðar á
Vesturhópshólum).
Hvammur í Laxárdal: Björn Þorvaldsson (um miðja 17
öld;, missti embætti fyrir barneign, fjekk eigi
uppreisn.
Glaumbær: Skúli Illhugason (síðar á Möðruvallakl.), 1726.
Viðvík:
Arngrímur Gizurarson (áður á ílofi á Skagaströnd),
1663.
Jón Pálsson (einnig á Hólum), ísl. árb. 6. D. bls. 126.
Ólafur Ólafsson, Isl. árb. 7. D. bls. 47.