Gangleri - 01.08.1870, Page 26

Gangleri - 01.08.1870, Page 26
26 síðan verið köllnð „Stórabóla8, og talin hjer hin þriðja landplága af bráðasóttum. 1715 var vor kalt og grasbrestur mikill og óþurkar, einkum norðanlands; var þá alþingi mjög íá- mennt vegna harðinda. 1716. Seinastu daga júnímánaðar kom svo mikil snjó- hríð, að fje fennti á fjöllum og afrjettum, en fjen- aði þurfti að gefa heima. f*að sumar var eldur uppi í Grímsvötnum. 1717 var eldur uppi í austurjöklum, íjell þá sandur mikill í f*ingeyjarsýslu og Eyjaíirði. 1718 gjörði vetur harðan svo peningsfellir varð allmik- ill, og fólk flosnaði upp, helzt fyrir sunnan á Innnesjum, en þing varð fámennt vegna harð- inda. 1721 var eldur uppi í Kötlugjá. 1724 var vetur harður og eldur uppi í Kröflu, sá eldur var uppi hin næstu missiri, og einu sinni þornaði þá Mývatn upp að mestu. 1727 sprakk út Öræfajökull. 1737 var vetur stórhríðasamur með snjóþunga og hag- leysu, er hjelzt fram í fardaga fyrir norðan; á vetri þessum urðu víða miklir fjárskaðar, og 6 menn urðu úti, 1738 gjörði vetur aptur harðan frá allraheilagramessu, og allt fram á útmánuði. 1739 gjörðist vetur harður frá nýári vestanlands og norðan, og gróðurlaust fram yfir fardaga; fjell þá peningur allvíða úr hor og kulda um vorið. f*á var fiskilítið og landfarsótt gekk yfir. 1741 var grasleysis ár og hafísar, því eigi hafði kom-

x

Gangleri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.