Gangleri - 01.08.1870, Side 33

Gangleri - 01.08.1870, Side 33
33 jeg hef þráð aö finna þig“. „Jeg veit lfka af öðrum, sem hefir þráð þig Einar“, sagði Steinunn í hálfum hljóð- um, og lagði um leið hinar fögru hendur sínar um háls honum. Einar var sonur nágranna Ingimundar gamla, er almennt yar kallaður Ólafur g I a ð i, af því hann var síglaður, en var þó fátækur og átti við erfið kjör að búa; hann bjó á einni af konungsjörðunum, sem þó var með þeim lökustu, en þó að hann væri snauður af tím- anleguin efnum, þá hafði þó Guð blessað hann á ann- ann hátt. Hann var heilsugóður, og átti góða konu, og við henni einn son sem bæði hjónin sögðu að væri gulli betri. Öllum var vel til ólafs, sem hann þekktu, nema Ingimundi; þeir máttu aldrei sjá hvor annan, ef vel átti að fara, og þegar Steinunni kom það til hugar, þá fór um hana kaldur hrollur, eins og hún hefði sjcð ein- hverja ósjón; hún minntist þá ætíð atburðar nokkurs, er hafði borið við fyrir æði mörgum árurn. Svo bar einusinni við í kauptíð, að hún hafði feng- ið leyfi hjá föður sínum til að ríða í kaupstaðinn með honum í fyrsta sinni. Ilún reið á E a u ð sínuin, er fað- ir hennar hafði gefið henni; já, þá var nú gaman á ferð- um I Aldrei hafði hún haft hugmynd um allt það sein hún sá á þessari ferð. Á leiðinni mættu þau fjölda mörgum lestamönnum, og mörgum smámeyjum, er allar voru prúðbúnar og komu úr kaupstaðnum. Og svo var nú ekki miunst varið í kaupstaðinn sjálfan; þar voru þrjú timburhús, fyrir utan öll vöru- geymsluhús, þar sem ull og tólg og fl. var geymt; og svo sætabrauðið, silkiklútarnir, og barnagullin í búðinni Gangleri IU. hepti. 3

x

Gangleri

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gangleri
https://timarit.is/publication/92

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.