Gefn - 01.01.1872, Side 6

Gefn - 01.01.1872, Side 6
8 verið svo illa snúið, að sá eiginlegi mergur og andi helir horfið úr þeim með öllu; en það vitum vér og sjáum á degi hverjum, að eriendir fornfræðíngar og málfræðíngar, sem rita um norræn fræði, skilja fæstir íslendsku svo í neinu lagi sé, enda þótt þeir láti prenta lángar runur úr fornritum vorum. f->eir styðjast við enar latínsku þýðíngar vorar eða þá aðrar þýðíngar, sem beinlínis eða óbeinlínis eru (il komnar fyrir krapt Íslendínga, en láta ætíð prenta frummálið. fætta vitum vér meðal annars á því, að þeir eru aldrei færir um að setja saman eina einustu setníngu á íslendsku svo rétt sé, nema kannske fáein orð; — þessar sögur yfirgánga líka og ofbjóða þessum lærdómsmönnum, því þeir eru allir gagn- teknir af Eddukvæðunum og halda að ekl'ert anrmð dugi. Eddukvæðin innihalda lítið sem ekkert af því sem hér er um að ræða, því innihald þeirra snertir annaðhvort náttúru- hlutföll og goðalíf, eða þá Volsúngasögurnar, sem eru miklu ýngri hugmyndir en til að mynda sögurnar um Ketil hæng, 0rvarodd, og aðrar slíkar sögur. fæssar sögur, sem eg á hér við, eru almennt viðurkendar (eins og líka rétt er) að vera eign og verk Íslendínga; eu einmitt þess vegna hafá menn fyrirlitið þær svo mjög, meðfram líka af því að menn fundu hversu tröllslegar þær eru og óviðráðanlegar, en hvorki gátu skilið né vildu skilja að neitt væri notandi í þeim — því sú venja hefir lengi tíðkast og vaxið á meðal enna ýngri norrænu málfræðínga, að viija eigna Noregi (og Danmörku) það sem fegurst og hest er í Eddukvæðunum, en láta oss hafa það sem ónýtt er. Sama er að segja um tröllasögurnar: af því þær ekki fást við þýskar eða hálfþýskar hugmyndir: Voisúnga, eða slíkt, sem eiginlega miklu fremur tilheyrir fijóðverjum en Norðurlöndum, þá eru þær álitnar ónýtar og smekklaus »faetura medii aevi« (miðalda-hroði), eins og rit- verk vor eru kölluð í formálanum fyrir Stokkhólmsútgáfunni af Sæmundar-Eddu. Menn álíta almennt að íslendsk bókvísi ekki nái lengra en hér um bil niöur að fjórtándu öld, og eptir þann tíma sé allt ónýtt og svo sem ekkert — vér

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.