Gefn - 01.01.1872, Page 7
9
hinir nú lifandi rithöfundar erum aldrei nefndir, og jafnvel
sjálfir Islendíngar, svo sem Guðbrandur í orðabókinni íslend-
sku, fvlgja þessari reglu, að gánga frambjá tuttugu og þrjátíu
ára rithöfundum með fyrirlitníngu eins og væri þeir ekki
til, þar sem hver þjóð þó nefnir sína menn og gleðst yfir
þeim ef nokkuð er við þá — menn skyldu halda að Guð-
brandur hefði lært þetta af dönskum blaðamönnum, þar sem
þó ekki einasta þjóðverjar, heldur og tveir enir helstu Danir
hafa látið land vort njóta þess sannmælis, að það með tilliti
til bókvísi væri fjó’rða landið á Norðurlöndum; en allir enir
ýngri málfræðíngar — blaðamenn geta ei tekist til greina — eru
samdóma og eindregnir í því að álíta Íslendínga svo sem
Skrælíngja sem ekkert skilji lengur í enum eldri ritum, en
hafi spillt máli sínu svo mjög að það sé nú varla þekkjan-
legt við það sem áðurvar; af þessu leiðir að vér erum ekki
lengur álitnir hæfir öðrum f'remur til að dæma um eða fara
með fornritin, og sumir eru jafnvel teknir til að yrkja á
voru eigin máli, þó þeir varla kunni aö hneigja orðin, hvað
þá heldur geti komið upp nokkrum skáldskap. þessu skylt
er enn það, að þó nú sumir, og sér í lagi íslendskir lær-
dómsmenn, hljóti að kannast við, að til sé rit og kvæði frá
vorum tímum, þá er samt einlægt verið að tala um að menn
»stæli« ena fornu höfunda og en fornu skáld, í hvert sinn
sem mönnum verður að taka líkt til orða og þeir, eða yrkja
með sömu háttum og þeim sem tíðkuðust í fornöld. »Að
stæla« álít eg ekki sé komið af »stál«, en eg álít að það
sé eiginlega sama sem »að stela«; það er: menn bera oss
enum ýngri mönnum alltaf, og enum eldri mönnum allopt,
á brýn, að vér stelum frá hinum, eða að vér séum rithvinnar
og skáldþjófar eða þjófskáld. Raunar er þetta svo gamalt,
að Auðuni illskældu var borið þetta sama á brýn, og því
var hann kallaður »illskælda« og kvæði hans »stolinstelja«,
og það getur vel verið að hann hafiátt það skilið; en ann-
ars er þessi áburður alveg rángur og óréttvís, og sú meiníng
rammskökk, að menn »stæli«. þó höfð sé lík orðatiltæki og