Gefn - 01.01.1872, Page 13

Gefn - 01.01.1872, Page 13
15 (sém annars heldur Islendíngum fram) segir, að Islendíngar þekki ekki lengur Volsúngasögurnar, Sigurð Fofnisbana, og allt það fólk, af því þær sögur sé ekki prentaðar í »íslend- skum þjóðsögum« — eins og Jón Árnason hefði átt að gefa út allar Fornaldarsögur, og allar íslendskar sögur, til þess að láta Beauvais sjá hvað vérvissum; jafnt því sem Grímur Thomsen segir um oss í »Noidisk Conversationslexicon«: »að en ýngri íslendska bókvísi ekki standi jafnfætis hinni eldri hvað tilbreytíngu og frumsmíð snerti« — sem er sú hauga helvítis lýgi sem ekki tekur neinu svari. Eg gæti tilfært miklu meira um þetta efni, og um þær enar kátlegu sögur, sem gánga af okkur í heiminum — eg held engin þjóð sé eins skömmuð út og afskræmd fyrir manna augum eins og Islendíngar — svo sem til að mynda það sem Mar- mier segir: að einhverr Islendíngur hafi verið staddur á Englandi og heyrt þar eitt íslendskt orð: þá hafi þessi landi vor farið að æpa og kveina af heimfýsi með svo miklum óhljóðum og ósköpum, að það hafi orðið að flytja hann heim — þetta á nú að vera svo sem dæmi upp á föðurlandsástina; en eptir því sem Berghaus landafræðíngur segir frá í einui bók sinni, þá er réttargángurinn á Islandi þannig, að hinn ákærði og ákærandinn standa einhversstaðar og kveðast á níðvísur hvoiT um annan, og sá sem yfirgengur hinn, vinnur málið; þetta erprentað og géfið út á Jnskalandi eptir 1860. Hér á móti set eg þrjá merkilega menn, hverra minnsti fíngur er máttugri en allir hinir sem oss eru andvígir. Hinn fyrsti er Wachsmuth (prentað eptir 1830): »Eins og ferð- irnar ekki tældu Islendínga til þess að apa eptir erlendum þjóðum, eins varð sú hin trygga endurminníng um hið forna móðurland og sú hin nákvæma yrkíng máls og skáldskapar, sem alltaf varð ríkari og einkennilegri, undirstaða til íslendsks þjóðernis, sem raunar svaraði til ens forna lífs í Noregi, en sem þó varð allt öðruvísi og með sérlegri blæ, af því hitt (o: Noregslífið) stóð opið fyrir áhrifum tímanna og gat því

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.