Gefn - 01.01.1872, Page 19

Gefn - 01.01.1872, Page 19
21 Tíminn. Stuttog ljóst yfirlit yfir ástand mannanna eröllum nauð- synlegt, og ekki síst þeim sem ekki hafa tækifæri til að verja tíma sínum til að lesa — þó ekki væri nema þús- undasta hluta alls þess ógrynnis af bókum, sem út kemur í heiminum á ári hverju — jafnvel á hverjum degi. [<ó það raunar se nokkuð stórkostleg hugmynd, að vilja gefa yfirlit yfir allt heimslífið á fáeinum blöðum, þá ráðumst vér engu að síður í það, því rit þetta er svo lítið, en hið einstaka svo mikið, að vér getum ekki farið öðruvísi að. Blöðin hafa nú fyrir laungu flutt fregnirnar um styrj- aldarlokin, og um það hvernig Parísarmenn börðust loksins hvorr við annan, en einmitt þetta innbyrðis stríð er sá hlutur, sem skjótlega hefir snúið hugum mannanna í nýja stefnu og komið öðru sniði á allt líf Norðurálfunnar, að kalla má, en áður var. Kaunar hefir verið drepið á þetta í J>jóðólfi og í Skírni, en vér efumst um að menn eigi hægt með að átta sig í því moldrvki af útlendum nöfnum sem þar eru talin og sem íslendskt fólk ekki einusinni fær fram borið, því höfundum þessum þykir það óþarfi sem forfeðrum vorum þótti mest á ríða: að laga nöfnin eptir málinu, eða að minn- sta kosti víkja þeim svo við að menn geti kveðið að þeim — það er annað hvort í ökla eða eyra: útlend nöfn og orð,

x

Gefn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.