Gefn - 01.01.1872, Page 28
30
að því skapi þúngir, sem vér getum ímyndað oss að væn
á sólinni. Ef vér ímyndum oss að þar sé menn og manna-
verk — sem raunar ekki getur verið, eins og síðar mun
sýnt verða — þá hlyti hvert vatnsglas þar að vega heilt
lýsipund og maður sjálfur tólf skippund; eða, ef öll hlutföll
ætti að vera samkvæm mikilleika sólarinnar, þá yrði menn
þar að vera hærri en hæstu turnar og allt þar fram eptir
götunum. Öll jarðnesk hlutfoll yrði þar að engu. — Hug-
myndirnar um eðli sólarinnar voru lengi bygðar á þeim
blettum, sem sjást á henni í gegnum lituðgler; og einkum
hefir Herschel hinu eldri lagað þar eptir skoðun sína á þess-
um hlut og (ásamt fleirum) þókst finna, að sólin veltist
um ás sinn á hérumbil 25 dögum. Blettirnir eru dimmari
en sjálfur sólarljóminn, og svo sýnist sem menn sjái í gegn-
um ljómandi skýjavegg eða rofinn geislahjúp; sumir þessir
blettir eru miklu stærri en allt yfirborð jarðarinnar; stundum
ro fnar geislaljóminn, svo margir blettir renna saman og verða
að einum; og af öllu þessu réðu menn það, að þessir dökku
sólarblettir væri í rauninni sjálfur sólarhnötturinn, dimmur
og svartur, en umkríngdur geislandi himinljóma, sem streymdi
út við sólarmöndlana á líkan hátt og norðurljós og suðurljós
við jarðarásana; menn gerðusér afþessu margar hugmyndir
um að sólin væri bygður hnöttur og álitu það jafnvel óhugs-
andi að slíkt feiknahvel ekki væri alsett skynsömum verum;
sumir héldu þar væri sælustaður; sumir það gagnstæða, og
hugsun mannanna tálmaðist ekki af neinni líkamlegri rann-
sókn á þessu reikandi flugi, sem heldur ekki var von.
Að engar verur með líkamlegu eða mannlegu eðli geti
verið á yfirborði sólarinnar, hlýtur hverjum þeirn að vera
auðsætt, sem hugsar um þetta með nokkurri eptirtekt.
Slíkar verur geta ekki verið án vatnsvökva, og liann getur
alls ekki verið þar sem sá hiti er, sem yfirgengur allt sem
vér þekkjum á jörðunni. Hvað meira er, sólin er svo heit,
að hún getur jafnvel ekki verið bráðin eldvella eða eins og
glóandi dropi í geiminum; hiti hennar er svo mikill að hún