Gefn - 01.01.1872, Side 33

Gefn - 01.01.1872, Side 33
35 ljósinu merkja það, að hún hefir þar mist geislana, annað hvort í sjálfri sér, eða þá á leiðinni í gegnum himingeiminn. Menn hafa einnig skoðað stjörnuljós á þenna hátt, og fundið hið sama: menn hafa þar fundið hin sömu frumefni og á vorum hnetti, og með þessu móti hafa menn og fundið, að í sumum stjörnum hafa orðið þær breytíngar fyrir vormn augum, sem mundu hafa eyðilagt allt líf á jörðunni í einu vetfángi, ef þær hefði orðið í sólinni. Frakkneskur maður, Faye að nafni, hetir nú komið upp meö nýja skoðun á eðli sólarinnar, sem raunar styðst við uppgötvan þeirra Fi'aunhofers og Kirchhoffs, en þó einnig við annað meira. Menn ímynda ser venjulega, að einn hlutur hljóti að vera því heitari, sem hann er bjartari; en því er ekki svo varið. þegar bráðnir hlutir hitna svo mjög, að þeir verða að lopti, þá dofnar Ijós þeirra. Láti menn ein- hvern fastan eða harðan líkama í þennan hita, þávex ljósið þegar líkaminn verður glóandi. það sem gerir kertaljós skært lýsandi, það er ekki tólgin, og ekki kveikurinn; en það er kol, sem er ósýnilega sveimaudi sem dupt í lopthit- anum. Á þessum hlut hefir Faye bygt, skoðan sína á sólareölinu, sem yfirgengur allt sem mönnum híngað til hefir dottið í hug, en sem menn alltaf fallast á meir og meir. Samkvæmt þessari skoðan er sóliu ekki annað en lopt, eða þéttur lopthnöttur, eins þúngur og áður er sagt (því samau- þrýst lopt er mjög þúngt), en svo heitur að þar getur enginn líkami verið, hvorki bráðinn né óbráðinn; utanum þennan lopthnött myndast nokkurs konar skurn, af því þar er nokkuð minni hiti en innan í sjálfum hnettinum; en þetta skurn, sem svífur í lopti utan um sjálfan lopthnöttinn, getur elrki haldist óbrotið, heldur hrynur það hvað eptir annað ofan í lopthnöttinn, sem fyrir vorum augum sýnist dimmur, þótt hann í rauninni sé glóandi, því enir föstu líkamspartar, sem myndast við storknanina, magna ljósaflið, svo þar af leiðir, að skurnið glóir meir en lopthnötturinn sem fyrir innan er; þegar þetta hrynur þannig inn, til þess að verða 3*

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.