Gefn - 01.01.1872, Síða 37

Gefn - 01.01.1872, Síða 37
39 þetta frumefni lífsins er það sem náttúrufræðíngarnir kalla »protoplasma«, setn eiginlega merkir ekki annað en »frum- mynd«, það er: lífsefni. Úrþessuefni myndast upprunalega sér hvert egg hvers dýrs sem er, sér hvert fræ allra jurta eða réttara sagt: sér hvert frumkorn (cella) felur í sér einn dropa af þessu lífsefni (protoplasma), og frumkornið lifir því að eins, að lífsefnið sé í því; ef það er horfið á einhvern hátt, þá þorriar frumkornið og deyr. J>etta lífsefni er seigt og hvítleitt að lit, líkt og hvíta í eggi, og í því eru ofur smá korn, sem ekki sjást með berum augum; þessi korn eru segulmögnuð og hreifast til og frá. J>egar þau verða fyrir áhrifum ljóss eða hita, þá komast þau úr jafnvægi sínu og dragast saman og ummyndast margvíslega, og þá fer lífið eiginlega að myndast. f>að lítur jafnvel svo út, sem menn eigi ekki svo lángt í land til þess að geta myndað þetta lífsefni og þar með lífið, því Berthelot hefir tekist að búa til ýmisleg skyld efni, sem áður var haldið ómögulegt að framleiða af manna völdum, og jafnvel Berzelius lýsti það óhæfu, og honum trúðu náttúrlega allir. En nú eru menn komnir lengra. Berthelot lét efnin í glerflöskur og lét þau standa vikum og mánuðum saman í ofsahita, allt að 200 stigum, og þá sameinuðust þau og urðu að því sem menn grunaði aldrei að yrði framleitt af mönnum. Hann áleit mest undir því komið, að hitinn væri nógur og þrýstíngin mikil, bæði þannig að flöskurnar væri vel luktar, og svo að efnin gætu þrýst hvort að öðru: á sama hátt hefir lífsefnið mynd- ast í höfum hnattarins, rneðan þau voru heit og allt loptið lángt yfir suðuhita; sjór og lopt sameinuðust til þess að þrýsta fast að efnunum og þjappa þeim saman, og af þessari sameiníngu varð lífsefnið eins og glæta eða hlaup á marar- botni, eins og vér drápum á hér á undan. Til þess að komast eptir þessum hlutum öllum, hefir Darwin rannsakað svo mikil feiku af jurtum og dýrum, að furðu gegnir. Hann rannsakaði allar tegundir taminna dýra

x

Gefn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.