Gefn - 01.01.1872, Side 38

Gefn - 01.01.1872, Side 38
40 svo þúsuiidum skipti, til að sjá hvernig þau æxluðust og hvernig lífernishættir þeirra gripi inn í vöxt þeirra og við- gáng. Eiuúngis enar ítarlegu rannsóknir hans um flutníng enna lifandi hluta mundu geta veitt horium ódauðlega frægð. Hann prófaði, hversu lengi jurta fræ gæti varðveitt vaxtar- eðlið í sjó, eða í sarpi fugla; hversu lengi vaxtareðli frækornanna gæti haldist við, ef sá fugl, sem etur korn, er drepinu og etinn af ránfugli, sem lifir á kjöti, svo fræ- kornin verða að vera um hríð í maga ránfuglsins; hann rannsakaði flutníug dýra og jurta á jökum og ísflögum, og að mestu leyti hefir honum tekistað sýna og sanna saman- hengi dýra og jurtalífsins allt í frá norðurhjara hnattarins og suður á Falklands eyjar. Hann sýndi, hvernig metn- íngur og fegurðartilfinníng dýranna ræður æxluninni, eins og þegar kvennfuglar flykkjast að þeim karlfuglinum sem fegurstur er, en hirða ekki um hinn sem hefir mist tjaður- djásn sitt í áflogunum; hann sýndi, að margar jurtir ekki með nokkru móti geta æxlast, nema því að eins að fljúgandi skorkvikindi beri sæðið frá karljurtinni yfir á kvennjurtina. Sumt af þessu þektu menn raunar áður, en allt á stángli, og því var ekki eiginlega gefinn neinn gaumur; það var álitið eins og eitthvað merkilegt náttúruafbrigði, en mönnum datt enn ekki í hug, að þetta væri föst og óbrigðul lög, sem náttúran fylgdi. Hann sýndi, að barátta og stríð dýranna stendur í nánu sambandi við æxlun þeirra og iífsmyndan; að náttúran ekki hleypir að hverri rnynd, heldur kýs þær sem hæfilegar eru, en hafnar hinum, og yfir höfuð leiddi hann menn á nýjan veg, eptir að Linné, Cuvier og fleiri voru búnir að opna musteri náttúrunnar með lyklum skipt- íngaiinnar og ennar samlíkjandi limafræði. 3. Eannsóknirnar um sjálft mannkynið eða mannfræðin er hin þriðja stefna ens vísindalega lífs vorra tíma. þessar rannsóknir deilast í ýmsar greinir — vér getum sagt, að öll fornfræði og náttúrufræði stefni að þessu takmarki: að þekkja sjálfan sig. Tilvera mannsins er nú jafnvel enn

x

Gefn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.