Gefn - 01.01.1872, Side 50
52
því landgæði og fegurð Javalandsins stóð þeim fyrir hug-
skoíssjónum, og þar var raunar betra og fegra land.
Eptir margar raunir og mikið tjón gáfust Hollendíngar
loksins upp, því þeir komust aldrei svo lángt að þeir kvnni
að meta eðli þessara landa. Van Diemens land lá í eyði
þángað til 1803, að Englendingar bygðu þar og sendu þángað
sextán óbótamenn, tíu kartmenn og sex kvennmenn, sem
hermannaforíngi nokkurr átti að gæta ásamt með sex dátum.
Nylenda þessi óx bráðum, er miklu fleira af þess konar
fólki bættist við ; en við ill kjör hlutu þeir lengi að búa,
því það fór með þetta land eins og ísland forðum: enginn
vissi hvað landið eiginlega var. Að það var nýlenda, vissu
menn raunar; en á Englandi, þar sem aðalstjórnin var,
héldu menn það væri nýlenda frá Nýja Suðurvales; og á
Nýja Suðurvales héldu menn það væri nýlenda frá Englandi.
(Nýja Suðurvales liggur á sjálfu Hollandi enu nýja og er
en elsta nýlenda þar). Af þessu leiddi. að þegar eitthvað
þurfti að ákveða eða gera við Van Diemens land, þá vís-
aði hverr frá sér og allt gekk í tómum rekstri og bréfa-
skriptum á milli Englands og Nýja Suðurvales, og þá stóð
marga mánuði á hverri ferð; en á meðan fékk fólkið á Van
Diemens landi ekkert til viðurværis, og mundi hafa hrunið
niður, ef þá hefði ekki úað þar í skógunum af strútsfugl-
um og öðrum dýrum, sem menn veiddu sér til matar; menn
urðu jafn vel að eta þáng og marhálm, og brauð eða korn
sást ekki í marga mánuði; en ekki varð þessu fólki, sem
var hinn versti skríll og dæmdur til æfilángrar þrælkunar
fyrir stórglæpi, með nokkru móti haldið til að yrkja jörð-
ina. þvert á móti var ómögulegt að halda yfir þeim neinni
stjórn; þeir struku hópum saman og lögðust út, og árið
1812 voru þar orðnir 28 stigamenn saman í flokki, og hét
sá Hove, er fyrir þeim var, alræmdur stigamaður sem hengja
átti á Englandi, en fékk lausn með því móti hann færi
þángað og kæmi aldrei aptur. þeir stálu hestum úr ný-
lendunni, sem þángað höfðu verið fluttir og voru þeir svo