Gefn - 01.01.1872, Side 52
54
lægustu smalakofum. Loksins tóku þrír menn sig saman
um að svíkja liann og drepa, og þeim tókst þáloksins með
mikilli þraut að berja hann í hel með byssuskeptum.
Vér tökum það upp aptur, að þetta var árið átjánhund-
ruð og tólf; og þetta er einúngis eitt dæmi af mörgum
uppá nýlendulífið, eins og það var í upphafi vega sinna, og
þannig hefir það allstaðar verið þar sem Englendíngar hafa
átt hlut að.
Aðaiorsök þessa ástands var sú, að meginhluti nýlend-
umanna voru þjófar og bófar, sem voru fluttir þángað í út-
legð frá Englandi og voru haldnir í stórhópum og látnir
vinna þrælaverk, höggva við og grjót: þeir voru á gráum
og gulum fötum og merktir sem dýr eða dátar, og fætur
þeirra í járnhöptum svo þeir gæti ekki hlaupið á burtu.
Arið 1842 voru þar alls 79,000 manna, og þar af 20,000
þræla, og sáu menn þá úr því, að ógjörníngur var að fjölga
þar glæpamönnum; allt fólkið afsagði þá, svo það var loks-
ins af tekið 1854; en 1826 hafði landið verið gert að frjálsri
nýlendu með sjálfsforræði, eins og önnur slík lönd Engla;
þá var og landið skírt á ný og kallað Tasmanía, afTasman,
sem fvrr var getið, því mönnum þótti sér misboðið með
þvi að sagt var af hótfindni »Van Demonians« (í stað Van
Diemen), sem merkir djöflasyni eða púkaniðja, og miunti
þá óþægilega á að þeir áttu ætt sína til þræla að rekja.
Mjög seint hefir landi þessu miðað áfram, þótt þar sé
mjög gott land fyrir Norðurálfumenn. 1854 voru þar
64,874 menn (þar af 11,718 enskir þrælar og 16 innfæddir
menn). 1857 voru þar 80,000 og nú eru þar hérumbil
100,000. þ>ar eru tveir aðalkaupstaðir, Hóbarttún ogLank-
estún; í enum fyrra búa 20,000, en í enum síðarnefnda
11,000 menn. þetta eru alltsaman aðkomumenn, án alls
þjóðernis og allra þess konar tilfinnínga, þeir hafa engar
bókmenntir sér og enga endurminníngu um neina fornöld;
þeir eru eiginlega breinglaðir Englendíngar og ekkert ann-
að. Arið 1866 nam verzlunin 12 millíónum dala, enmenn