Gefn - 01.01.1872, Síða 55

Gefn - 01.01.1872, Síða 55
57 þeir hvorki gátu né gerðu það rneð öðru móti en þvi að drepa eyjarskeggja. Margar raunasögur eru um þetta efni; hér er eintil dæmis: Eitthvert sinn varðvartvið hóp eyjar- skeggja, það voru menn, konur og börn, sem voru að verma sig við eld í skógi. Strax þóttust nýlendumenn þurfa að reka þá burtu, svo þeir væri þar ekki í nágrenninu, og nú læddust þeir inn í skóginn. En þegar þeir voru komnir all- nærri eyjarskeggjum, þá geltu hundar þeirra, svo allt fólkið þusti á fætur, en hrundi niður í sama augnabliki, því skotin dundu á þeim hvaðanæfa; eptir þenna »sigur« fóru enir »siðuðu« að kanna valinn og fundu þar eitt lifandi harn — þeir fleygðu því í eldinn. Eptir því sem tímarnir liðu fram og menn vrktu landið meir, þá fengu eyjarskeggjar líka meira að starfa, þeir gátu spillt miklu meiru: þá hrendu þeir bæi og akra og drápu þá sem þeir náðu eins og fyr. Hermannaflokkar voru opt sendir út um land til þess að reyna til að ná eyjarskeggjum, en það tókst mjög sjaldan, og þar að auki var dátunum ekki mikið um slíkar ferðir. Loksins réði stjórnin það af árið 1830, að reyna til að ná öllum eyjarskeggjum á sitt vald í senn, til þess að binda enda á þennan sífeldlega ófrið. Liðið var látið fara í fylkíngum þvert yfir eyna, en millibil voru samt á milli fylkínganna, og áttu því ríðandi hermenn að hleypa þar á milli til og frá, svo enginn kæmist undan. þessi herbúnaður var framinn með mikilli alvöru og stórmenn- sku, gulllagðir riddarar þeystu á harða flugi frá einum stað til annars og það var ekki annað að sjá en fremja ætti eitt- hvert ógurlegt stórvirki. fiannig leið nokkurr tími, og hlöðiu, sem allstaðar eru eins og óþefurinn, höfðu stóreflis hersögur að færa um grimdar bardaga og skelfileg mann- dráp og mannfall af hvorutveggjum. En það fór svo fjarri að nokkur hæfa væri í þessu, að ekki varð vart við nokkurn einn einasta svartan mann — stundum voru þeir að skjóta á eikarstofna, og svo gáfust þeir upp um síðir, þegar eng- inn fannst.

x

Gefn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gefn
https://timarit.is/publication/93

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.