Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Qupperneq 5
STJÓRN.
5
Sama dag voru og sampykkt lög um friðun fuglaog hreindýra.
Kríur og spörfuglar, svo sem snjótitlingar, púfutitlingar, maríuerlur,
steindeplar og prestir skulu friðhelgir á hvrjum tíma árs sem
er. En allir aðrir fuglar, nema ránfuglar, lundi og bjargfugl,
skulu friðhelgir frá 1. maí til 20. ágúst, og rjúpur frá 1. apríl
til 20. ágúst. Sá er brýtur, sektist um 50 aura, og tvöfaldast
pað við hvert hrot allt að 16 kr. Hreindýr skulu friðhelg frá
1. janúartil l.ágúst, og skal sá, er brýtur, sekur um 5 kr., og
tvöfaldast pað við hvert brot upp að 80 kr. Helmingur sekta-
fjárins rennur í landsjóð, en helftina fær uppljóstarmaður.
Sama dag sampykkti og konungur l'óg um hann gegn innfiutn-
ingi á útlendum kvikfjenaði. Er par með öllu bannað að
flytja inn í landið nokkurn útlendan pening, nema með sjerstöku
leyfi landshöfðingja, og skal hann pá áður hafa leitað ráða dýra-
læknis um petta efni, og birta reglur um pað í stjórnartíðind-
unum í hvert skipti. Skipstjóri sá, er flytur inn fjenað með
öðru móti, skal sekur um eigi minna en 100 kr., og eigandi
fjárins um sama. Lög pessi eiga að varna pví, að næmir
fjársjúkdómar, einkum kláði, flytjist inn í landið, en hætt er
við að örðugt veiti að nota sjer pau meðan enginn dýralæknir
er til í landinu.
Lögin um leysing á sóknarhandi sampykkti konungur 12.
dag maímánaðar. Samkvæmt peim skal öllum húsráðendum,
og öllum, sem eru fermdir og 18 ára að aldri, leyft að kjósa
sjer annan prest en sóknarprest sinn. Skal hann sernja við
kjörprestinn, og tilkynna síðan prófasti, en prófastur sókn-
arprestinum samninginn. Eins skal að fara ef samningi er
slitið. Sóknarleysingi skal skyldur að gefa sóknarpresti sínum
skýrslu um öll prestsverk, er kjörprestur gjörir fyrir hann, og
skal sóknarprestur geta peirra 1 kirkjubók sinni. Skal sú
skýrsla gefin innan hálfs mánaðar, og fylgja henni vottorð frá
kjörpresti. Kjörprestur skal og geta verka sinna 1 sinni bók,
en ei setja í ársskýrslu nema fermingu. Ef lengur dregst að
gefa skýrsluna en 14 daga, varðar pað 2—10 kr. sektum um
viku hverja eptir ástæðum; sektir renna í hreppssjóð leysingja.
Sóknarprestur brúðar skal lýsa til hjúskapar, og svo skal og
lýsa fyrir honurn meinbugum og hjúskaparbanni, en öll önnur
ábyrgð hvílir á kjörpresti. Ef hjón vilja slíta sambúð, skal