Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Blaðsíða 43
VÍSINDALEGAR RANNSÓKNIR.
43
og 36 á breidd, og mældist nákvæmt 60 kúa fjós sem sagan
segir. Fast við fjóstóttina er skálatótt, 100 feta löng og 28
feta breið, og skammt í austur frá henni er girðing ein fer-
hyrnd, 49 fet á hlið, og innan í henni tótt lítil, ferliyrnd, 21
fet á hlið utanmáls. |>essa austasta húss er hvergi getið í
sögunni, en af sögunni má ráða, að ]>að verður að vera hof
J>orgríms, pví að hann var goðorðsmaður og blótaði Frey í
vinaboði að veturnóttum. Skammt upp frá Sæbóli (nál. 140
föðmum) eru tóttir að Hóli (er nú kallast Gíslahóll), og hefir
brú verið yfir mýrarsundið á milli; sjást hennar enn merki.
Lækurinn sem Gísli óð að Sæbóli, húsaskipun, afstaða — allt
er petta hnitmiðað niður í sögunni eins og pað er. J>ar fanst
og Yesteinshaugur skammt í frá, og nokkuð uppblásinn orðinn.
Sigurður gróf í hauginn og fann steinaraðir pær, er lagðar
höfðu verið að líkinu, og svartleita mold undir, en allt var par
orðið grautfúið í aurmoldinni. Annar haugur var par og, sem
sagan talar ei um, en líklega hefir pað verið haugur J>orbjarnar
Súrs. Að pessu öllu búnu fór hann að rannsaka tóttirnar á
J>ingeyri. J>ær eru 14, og að öllu líkar tóttunum á Valseyri,
og hefir J>ingstaðurinn að líkindum verið fluttur paðan pegar
skriðan fjell. Síðan fór liann til Arnarfjarðar að skoða menjar
úr Rafnssögu Sveinbjarnarsonar, og f'annst nokkuð. J>aðan fór
hann í Geirpjófsfjörð, og fann par tóttir í túninu á Botni af
bæ Auðar, konu Gísla Súrssonar; kallast tóttirnar enn Auðarbær.
Kleifarnar, par sem Gísli fjell og fylgsni hans var, blasa par
svo að segja rjett á móti; skoðaði Sigurður kleifarnar, og ber
peim svo vandlega saman við söguna, sem ritarinn liefði horft
á alla viðburði og ritað pá pegar. Fylgsni Gísla fann hann
par skammt í frá, milli skógarrunna, grafið inn í barð, í hvammi
við ána. Gróf hann upp fylgsnið, og var pað 8 fet á breidd
og 9 á lengd. J>akið var fallið niður, en ás og árepti sást vel,
hafði ásinu verið af eik, en áreptið af birki; allt var pað orðið
mjög fúið; búta af ásnnm kom Sigurður með að vestan, og er
pað nú í forngripasafninu. Annað fylgsni Gísla fann hann hjá
Auðarbæ, og er pað að öllu líkt hinu nema heldur prengra.
J>egar öllu pessu var lokið fór hann út með öllum Arnarfirði
og út að Selárdal, og safnaði mörgum og merkum ágætum
forngripum, og fekk margra góðra manna loforð fyrir pví, að