Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Qupperneq 6

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Qupperneq 6
6 STJÓRN. kjörprestur fyrst gjöra hina lögboðnu sátta tilraun, en gefa síðan vottorð um hegðun peirra; en ef hann getur pað ei yiðunanlega, skal sóknarprestur hæta við pví sem á vantar. Sóknarprestur skal semja allar lögboðnar skýrslur nema um fermingu; frá henni skal kjörprestur skýra. Leysinsi má pyggja alla prestspjónustu af kjörpresti, og er honum heimil sóknar- kirkjan og öll hennar áhöld til allra afnota en sjá að eins til pess, að pað komi eigi í hága við prestsverk sókn- arprestsins. Leysingi skal gjalda sóknarkirkjunni öll lögboðin gjöld og sóknarprestinum allar fastar tekjur. Sama dag ritaði konungur undir lög um kosningarrjett kvenna. Ekkjur, og ógiftar konur, sem standa fyrir húi eða eiga með sig sjálfar, og eru fullra 25 ára að aldri, eiga heim- ild á að kjósa menn í hreppsnefnd, sýslunefnd og hæjarstjóm, og eiga atkvæði á safnaðafundum, ef pær fullnægja öllum peim kröfum, er lögákveðnar eru fyrir pessum rjettindum. Sama dag ritaði konungur undir viöaakalög um stjörn safnaðarmála, til uppfyllingar lögum um pað efni, dags. 27. fehr. 1880. Er pað að eins ákvörðun um, að sóknarnefndir skuli jafna niður skylduvinnu peirri, er hvílir á sóknarmönn- um pegar kirkja eða kirkjugarður gr byggður, og hafa umsjón með vinnunni og tilhögun verksins. Ennfremur ritaði og lcon- ungur undir lög nm umsjón og fjárhald kirkna sama dag. í lögum pessum er svo fyrir skipað, að er tveir hlutir sóknar- manna, er gjalda til kirkju, óska á almennum safnaðarfundi, að söfnuðurinn taki að sjer umsjón og fjárhald kirkjunnar, skuli pað látið eptir, ef umsjónarmaður kirkjunnar er fús til pess, að fengnu sampykki hjeraðsfundar og biskups. Svo má og svipta prest fjárhaldi ljenskirkju og fela hana söfnuðinum, ef hjeraðs- fundur og biskup álíta hann óhæfan til pess. Ef umsjónar- maður vill losast við fjárhald kirkju, tilkynnir hann pað pró- fasti; lætur hann pá koma saman safnaðarfund, og ef tveir hlutir fundarmanna mæla með pví, fer pað fram, ella er málið fallið. pegar söfnuði er afhent kirkja, slcal prófastur gjöra út- tekt á kirkjunni og öllum gripum hennar, og skal kirkjuhald- arinn greiða álag á kirkjuna, að pví er sjóður kirkjunnar eigi vinnst til, og eins pó að kirkjan sje í skuld við hann; en pá skulu úttektarmenn meta að hve miklu leyti gjalda skuli skuld-

x

Fréttir frá Íslandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.