Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Side 18
18
ÁRFERÐ Otí ATVINNUVEGIR.
öllu, og aðrar urðu fyrir stórskemmdum, einkum á Landi,
Kangárvöllum og efra hluta Holtamannahrepps ; drap hríð pessi
fjölda fjár og hrossa; sama var og í Skaptafellssýslum. Vestra
var paðan af verst, pví að par voru hvíldarlausar hríðar allan
tímann frá 10. apríl allt til 6. maí. Slotaði pá aptur nokkuð
óveðrunum, pangað til 23. maí. |>á dundu aptur ylir frost og
fannkoma, og hjelzt pað vestra allt til 15. júni, en nyrðra
varð pað eigi eins langvinnt. par var um allt Norðurland svo
dimm hríð 24. maí að kunnugir menn villtust á alfaravegi, og
maður varð úti í Hrútaíirði. Svo má heita, að pessi tími, frá
10. apríl til 15. júni væri einn óstöðvandi og ólinnandi stór-
liríðabálkur, sem aldrei linnti nema fáa daga í maí; pá kom
hláka um stund, er tók upp snjóinn, en snjerist upp í norðan-
hríð, svo að eigi varð út komandi. Syðra var vorið að sönnu
eigi eins kafaldasamt, en par voru sífelldir purrir og kaldir
norðannæðingar, er spilltu öllum gróðri. Hafísinn lá frá Straums-
nesi við Aðalvík allt austur með Norðurlandi, samfrosta upp í
hverja á og hvern lækjarós, og suður með landinu að austan,
og allt vestur undir Dyrhólaey. pó var hann altaf allur laus-
ari fyrir Austurlandinu. í hríðum pessum voru opt frost mikil
(8—12° R.), og svo mikil vestra, að fyrstu viku maímánaðar
fraus skip inni á Stykkishólmshöfn, og varð hestís kring um
skipið. Seinast í júni fór að breytast til batnaðar syðra, og
voru par hlýindi góð í júlí, hitar og sunnan vætur, og tók að
líta vel út með grasvöxt, og pó að einstökusinnum hlypi á
norðan, varð ei neitt úr pví. Norðanlands birti upp poku-
kafaldið vikutíma síðast í júni, en skall svo saman aptur með
hríðahlaupum og frostum. Yar pá svo kalt par, að vetrarís
var ei leystur af Ólafsfjarðarvatni í Eyjafjarðarsýslu 6. júlí.
Seinustu dagana í júlí birti upp, en skall yíir aptur 4. ágúst,
og sá pá eigi sól til höfuðdags; var pá meðalhiti frá 13.—22.
ágúst nótt og dag óbreyttur 0° R. Með höfuðdegi birti upp,
og kom góður tími í viku; pá fór loksins hafísinn burtu frá
Norðurlandi. En samt hjeldust hríðaköstin allt til rjetta, og
taldist mönnum svo til, að 10 sinnum hefði alsnjóað nyrðra frá
Jónsmessu til rjetta. Yerst var pað hríðarkastið, er gjörði 12.
september og stóð í 3 daga með 7° R. frosti. J>á voru ár
riðnar á ís í Skagaíirði og í Dalasýslu og víðar, og gengið á