Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Side 40

Fréttir frá Íslandi - 01.01.1882, Side 40
40 MENNTUN. heiir orkt par nokkur ágæt smákvæði, og er bezt af ]>ví sum kvæði í flokknum Norðurfjöll; pað eru ferðakvæði, og eru sum þeirra sönn meistaraverk, einkum pegar pess er gætt, að skáldið er eigi nema tvítugt að aldri. Bertels kvæði eru sízt, og enda sum einskisvirði, en sum eru aptur heldur góð, pó að pau standi langt á baki hinu. Kver petta heíir fengið góðar við- tökur meðal flestra hinna yngri manna, en sumum hinum eldri hefir pótt nóg um nýjungarnar, og verður hver að ráða sinni meiningu í pá átt. — Hitt ritið er Brynjólfur Sveinsson byslcup, eptir Torfliildi porsteinsdóttur Holm, sem nú er í Vesturheimi. [>að er æfi Brynjólfs byskups Sveinssonar frá pví að hann varð byskup og þangað til hann dó, sett í skáldsögusnið. J>ar er getið flestra hinna heldri manna á Islandi í hans tíð, og drepið á suma helztu viðburði hjer á landi á peim dögum, sem talað er um í Arbókuin Espólíns. Saga pessi er víða og að mörgu leyti falleg, og lýsir guðrækni og góðu hjarta hjá söguskáldinu, en hún er mjög ófullkomið listasmíði. [>að er margt af persónum, sem hvergi snerta sögupráðinn, en koma að eins við, af pví að pær voru pá til, og er petta galli, er sqertir lieild og rás sögunnar, einkum af pví að skáldinu reynist ofvaxið að einkenna menn með stuttu máli. Skaplýsingar eru flestar ófullkomnar og óljósar, pví að hún hefir ei ráðið við að losa sig svo við sögu- kaflana í Espólín, eða laga pá svo í hendi sjer, að þeir yrði til pess að einkenna vel skaplyndi höfuðpersónanna. Málið á bókinni er sums staðar heldur gott, en sumstaðar er á því nokkuð mikill útlenzkublær, og efnisfærslan nokkuð «rómantisk». En pó að ýmislegt megi að bókinni finna, er það eigi að siður gleðilegt tákn, að kvennfólkið er líka farið að reyna sig. — Svo víkjum vjer nú að hinu lakara. Melablóm, smáskáldsögur og kvæði eptir Guðmund Hjaltason, er lítil bók, og kveður líka lítið að. Smásögurnar eru líktar eptir æfintýrum Andersens hins danska, sem fræg eru orðin um allan heim, en eru mjög lítilfjörlegar. Kvæðin eru og flestöll ómerk. Kverið ber með sjer að höfundurinn hefir töiuvert hugmyndaflug, en pað er svo óljóst og ruglingsiegt, að pað verður honnm að engu, eða svo óeðiilegt, að pað fellur á sjálfs sín bragði. — En alit sem eg hefi enn nefnt, og bók Eiríks frá Brúnum með, er konung- borið hjá Oamni og alvöru, kvæðum eptir Bjarna Árnason.

x

Fréttir frá Íslandi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir frá Íslandi
https://timarit.is/publication/95

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.