Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Blaðsíða 7
9
Löggjðf og landsstjórn.
efni til þessara laga má telja deilur þær, er urðu um vet-
urinn (’86) út af fiskveiðasamþyktinni fyrir Faksafióa, og
verður síðar skýrt frá henni nákvæmar.
8. Lög um breyting á lögum 8. janúar 1886 um lán úr
viðlagasjóði til handa sýslufél'ógum til æðarvarpsrœldar.
Lögin frá 8. jan., er samþykt vóru á alþingi Í885, kváðu svo
á um, að »sýslunefndunum í Snæfellsness-, Dala-, Barðastrand-
ar- og Strandasýslum sem og Mýra- og ísafjarðarsýslum, ef
þær beiðast þess veitist samtals alt að 10,000 kr. lán úr við-
lagasjóði til eflingar æðarvarpsræktar«. J>essum fyrirmælum var
þegar á aukaþinginu breytt þannig, að »í stað sýslunefndanna
. . . veitist lánið amtsráði vesturamtsins. Skai það verja því
til að eyða flugvargi þeim, er æðarfugli grandar á Breiðafirði
og við Strandaflóa, samkvæmt reglum þeim, er æðarrældarfé-
lagið á Breiðafirði og við Strandaflóa« (sjá Fr. frá f. á., bls.
33) »setur og amtsráðið samþykkir«. Orsök breytingarinnar
var samkomulagsleysi sýslnanna um skiftingu lánsins m. fl.
9. Lóg um að stjórninni veitist heimild til að selja
þjóðjórðina Hófðahús í Suðurmúlasýslu fyrir 1000 kr. sam-
kvæmt lögunum 8. nóvbr. 1883, '2. og 3. grein.
Við árslok var ekki útséð um afdrif tveggja þeirra laga,
er aukaþingið sendi fá sér: um löggildingu (7) nýrra versl-
unarstaða og um afnám svonefndra Maríu og Péturslamba.
Af lögum þeim, er þingið 1885 samþykti og óstaðfest vóru
þá við árslokin (sjá Fr. frá f. á., bls. 11) blutu þessi
8. janúar staðfestingu konungs:
16. Lóg um hluttðku safnaða í veitingu brauða. Með
þeim er sú breyting gerð, að hér eftir tekur söfnuður bvers ó-
skipaðs prestakalls í þjóðkirkjunni þátt í veitingunni þannig, að
>um umsækjendur þá, sem í kjöri eru, skal« á fundi fyrir
alt prestakallið »öllum þeim meðlimum þjóðkirkjunnar, sem
búsettir eru í prestakallinu og óspilt mannorð hafa, gefinn
kostur á að greiða atkvæði, ef þeir eru fullra 25 ára, þegar kos-
ningin fer fram, og hafa kosningarrétt á safnaðafundum samkv.
lögum m. 5 frá 27. febr. 1880, sbr. lög nr. 10 frá 12. maí
1882«; þó »skal laadshöfðingie áður »velja 3 af umsækjendum
til kosningar, þegar fleiri enn 3 hafa sótt um embættið«, og
»má á sama hátt velja 2« úr »til kosningar, hafi að eins 3