Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Blaðsíða 49
Mentun og menning.
51
ján Jónasson (skýrsla, sjá Fr. f. á. bls. 33); þar að auki gaf
það út þýðingu af bók Jobn Stuart Mills: On the Liberty (Um
frelsið) eftir Jón Olafssonalþingismann.
Tímaritið Iðunn kom þetta ár út að eins í 30 örkum, og var
Björn Jónsson ritstjóri einn kostnaðarmaður þess.
Blöðum fjölgaði mjög þetta ár. A Akureyri kom út nýtt
blað um veturinn (18. roars): Akureyrarpósturinn, útgefandi
Björn Jónsson prentari, sá er gefið hafði út Fróða, enn hætt
pá við og fengið Fróða í hendur þorsteini Arnljótssyni (prests
Ólafssonar), og síðar á árinu tók »félag í Eyjafirði* að sér út-
gáfu Fróða; enn Akureyrarpósturinn gafst upp á árinu. »Norð-
urljósið« (sjá Fr. f. á. bls. 52) kom og út á Akureyri (11.
ágúst); ritstjóri pess var Páll Jónsson (skólagenginn á Möðru-
völlum). |>ar komu og út um veturinn 3 nr. af háðblaði, er
nefnt var »Jón rauði«, útgefandi Ásgeir Sigurðarson. Blað kom
út á Isafirði 30. okt., er nefnt var “þjóðviljinn* ; »ritnefnd :
stjórn prentfélags ísfirðinga« og »útgefandi: prentfélag ísfirð-
inga« (sjá 21. bls. að framan). í Reykjavík kom út boðsbréf
að nýju blaði: »Alpýðlegt fréttablað«, ritstjóri Björn Björnsson
(búfræðingur), enn ekki varð af útkomu pess sökum kaupenda-
fæðar. Bindindisregla Góðtemplara hóf útgáfu bindindis-
blaðs, er nefnt var: »íslenski Good-Templar. Blað stórstúku
íslandsc. Hermann búfræðingur Jónasson gaf út boðsbréf að
búfræðitímariti, er koma skyldi út næsta ár. Eldri blöðin
(Austri á Seyðisfirði, Fjallkonan, Isafold, Suðri og pjóðólfur í
Eeykjavík, öll með sömu ritstjórn, sjá Fr. f. á. bls. 52, og líkri
stefnu, sbr. 3. bls. að framan) héldu öll áfram að kom út til árs
loka, og vóru pví pá alls 9 blöð gefin út á íslandi auk tíma-
rita (2 vikublöð, 6 hálfsmánaðarblöð og 1 mánaðarblað).
Nýjar bœkur komu fremur fáar út petta ár.
Merkasta bókin var (i guðfræði): »Sálmabók til kirkju-
og heima-söngs« (Bv. Kostnaðarmaður Sigfús Eymundsson).
Hún var verk þeirra sjö manna, er biskup liafði skipað í nefnd
árið 1878 til að endurskoða sálmabókina, enn nefndin hafði
ráðið af, með samþykki biskups, að stofna til nýrrar sálma-
bókar (sjá Fr. 1878 bls. 34). Hún var stærri enn sú næsta
sálmabók á undan (frá 1871), eða rúmar 30 arkir, með 650 nr.t
4*