Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Blaðsíða 20
22
Löggjöf og landsstjórn.
um þess dráttar, er þessir snúningar höfðu valdið, kom þingmaður
ísfirðinga, Sigurður Stefánsson, með fyrirspurn á aukaþinginu
um, livernig á honum stæði, enn þá svaraði landshöfðingi því,
að bónarbréfið lægi hjá ráðgjafa. Féll það mál svo niður.
S. 0. Kjær, cand. pharm., danskur maður, fékk 17. júní
konungsleyfí til að reka lyfjaverslun á Seyðisfirði.
— Heiðursgjafir úr styrktarsjóði Kristjáns konungs IX.
veitti landshöfðingi þetta ár J>orkeli dbrm. Jónssyni á Orm-
stöðum og Guðbrandi Sturlaugssyni í Hvítadal 160 kr. hvorum
fyrir framúrskarandi dugnað í landbúnaði.
II. Sainjföngnr.
Skipafcrðir og póstgöngur.—Fjallvegabætur.—Málþráður.
StrandferðasJcipin þóttu, auk þess sem hafís var þeim til fyrir-
stöðu, halda mjög illa ferðaáætlun sína kringum landið, eins
og vant er, enda hringluðu þau mjög til með hana: komu
ekki við á höfnum, sem þau áttu að koma á, þótt þeim væri
það innan handar, hefði góður vilji verið til þess (komu t. d.
ekki Skagaströnd í tveim ferðum), mörgum (kaupafólki, skóla-
piltum og öðru ferðafólki) til stórtjóns, höfðu hausavíksl á
ákveðinni komu sinni á margar hafnir og einu sinni fórust
þau þess vegna á mis hvort við annað, svo að flutningsgóss og
hréf urðu einni ferð seinni til Khafnar. Annars var mikið um
sfcipaferðir um sumarið og fram á haust hæði milli hafna (af
skipum frá Koregi og fjárkaupa- og verslunarskipum Skota o. fl.)
og milli íslands og útlanda: Skotlands, Danmerkur og Noregs
(fiskveiðaskip, er fóru flutningsferðir fyrir íslendinga), og skemti-
skip (tvö, frá Skotlandi með rafmagnsljós og frá Frakklandi)
komu til Reykjavíkur, eins og títt er, enda kom hingað all-
margt af ferðamönnum, einkum enskum, sumum tignum (Hen-
rik prins af Bardi og 2 ítalskir greifar með honum). — Frá
stjórninni kom 29. okt. auglýsing um, að »böglar, sem senda
á millum konungsríkisins og Færevja annars vegar og þeirra
póststöðva á íslandi hins vegar, er póstskipin koma við á,
mega vega 10 pund í mesta lagi; 5 pund mega böglar vega,
sem sendir eru 1 mánuðunum apríl til októher millum kon-