Fréttir frá Íslandi - 01.01.1886, Side 28
30 Bjargræbisvegir.
nefndin skýrslu um gjafirnar úr Danaveldi og höfðu þær orð-
ið alls 335013,40 kr. auk mikillar matvöru (flórmjöls, hveiti-
og hagldabrauðs, rúgs); var. ekki eftir orðið í vörslum nefndar-
innar, er skýrslan var gefin (23. okt.), nema um 1100 kr., er
fengnar skyldu landshöfðingja. — Munaðarvörukaup fóru held-
ur þverrandi, sem ekki er heldur pakkarvert; pó var alment
engin sérstök gangskör gerð í pá átt, svo orð sé á gerandi né
félagskap komið á til pess, nema pað sem bindindisfélögin
gerðu í afnámi vínnautnar, og verður pess síðar getið. J>ó
má geta pess, að konur kring um Mývatn höfðu fund með sér
í mars og bundust samtökum til munaðarvörusparnaðar (svo
sem takmörkun kaffinautnar, álnavörukaupa í verslunum o. fl.).
Greiðasala jókst nokkuð, og var komið félagskap á í pví efni
meiri enn að undanförnu; pannig var gerð sampykt fyrir alla
Dalasýslu um að selja máitíó af góðum óbreyttum mat á 30 au.,
kaffibolla 10 au., rúmlán fyrir 1 mann næturlangt 15 au.,
og fjórðung af heyi eftir gæðum 25—50 au.
Sjávarútvegur og fiskveiöar. J>etta ár má sjálfsagt telja
aflaár í betra meðallagi, pvíað yfir höfuð var talinn góður
fiskafli í flestöllum verstöðum allar vertíðirnar, pegar gæftir
vóru, og fiskur í meðallagi vænn. J>etta sýnir sig og á fisk-
útflutningi héðan af landi petta ár (sjá síðar um verslunina), pví-
að hann var töluvert meiri nú enn í fyrra, póað fiskur væri í
talsvert lægra verði, og pó hefir sjálfsagt meira að tiltölu verið
nytjað af landsmönnum sjálfum, einkum haustvertíðaraflanum,
er varð í mesta lagi á suðurlandi við pað, er hann hefir verið
um nokkur undanfarin ár. J>ilskipa-porskveiðin gekk líkt og
og árið áður, pvíað fiskur var nógur fyrir; pó öfluðu íslensk pilskip
miklu miður enn frönsk, eins og áður hefir verið, og pað jafn-
vel svo, að helmingi munaði alloft; ísl. pilskipin við Faksaflóa
fengu pó allmörg frá 24000 til 30000 af porski. Áhuginn á
pilskipaveiðum pótti dofna, enn pað var fisksöluverðinu pó
mest að kenna; svo póttu og forréttindin fyrir lánum úr
landssjóði til pilskipakaupa (sbr. i’r. f. á., bls. 12, 4. tl.) ekki
notuð samkvæmt tilgangi sínum. og var kvartað yfir pví á
ísafirði, par sem skipið var hvergi nærri talið lánsins virði.
Hákarlsafli varð allgóður, par sem pær veiðar eru stundaðar.
Síld aflaðist vel með köflum bæði á Eyjafirði og austfjörðum.