Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1899, Side 24
24
Á ferð sinni um ísland sumarið 1898 fann fornfræðingurinn
Daniel Bruun 2 rúnasteina í Hjarðarholti í Dölum, og ljet flitja
þá hingað til Reykjavíkur, og eru þeir nú í forngripasafninu.
Jeg hef skoðað báða steinana þar og auk þess haft firir mjer
mót, sem D. Bruun tók af þeim, og mun jeg nú lísa þeim svo
nákvæmlega, sem kostur er á án minda.
7.
Kálund getur um það í ritgjörð sinni, að í söfnum Jóns
Sigurðssonar sje mind af steini, reistum eftir Hall nokkurn Ara-
son; segir hann, að það sjáist ekki á teikningunni, hvar steinninn
sje fundinn, enn giskar á, að hann muni vera frá Hvammi í
Norðurárdal. Þetta er ekki rjett, því að steinn þessi, sem Ká-
lund á við, er einmitt annar af þeim steinum, sem D. Bruun
fann í Hjarðarholti í Dölum. Það er basaltsteinn aflangur með
5 hliðarflötum, og er nú brotinn í tvent um miðjuna þvers um.
Meðan steinninn var heill, hefur hann verið 136 centimeter á
lengd og rúnaletur á honum til annars endans á einum fletinum,
sem er 14 centimeter á breidd, og hefur letrið tekið ifir tæpan
helming af lengd steinsins, enn ekkert letur á þeim helmingi
rúmum, sem eftir er, þegar letrinu sleppir. Nú er sá endi steins-
ins, sem letrið er á, brotinn frá, og er það brotið 66 centimeter
á lengd. Rúnaletrið birjar 5 centimeter frá enda steinsins, og
er línan 51 centimeter á lengd og endar 10 centimeter frá þeim
endanum, sem af er brotið. Rúnastafirnir ná ekki alveg út á
brúnir flatarins að ofan og neðan, heldur er letrið höggvið nokk-
uð línuskakt eftir honum miðjum endilöngum. Á flestum islensk-
um rúnasteinum takmarkast hver iína að ofan og neðan af
tveimur jafnhliða rákum, sem rúnameistarinn hefur höggvið sjer
til leiðbeiningar til að afmarka lengd rúnastafanna, sem þá vana-
lega ná úr efri rákinni niður í hina neðri. Á þessum steini eru
engar slíkar rákir hvorki að ofan nje neðan við linuna, og því
er linan ekki heldur alveg bein. Hitt brotið, sem ekkert letur
er á, er 70 centimeter á lengd.
L e t r i ð :
iiMmiraiami
R á ð n i n g :
herligrhallrarason
þ. e. hér liggr hallr arason. Orðaskil hafa engin verið á steinin-