Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Side 2

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Side 2
4 vita til. Löngu norðar er í kvíslinni dálítil ey, löng og mjó, er heitir Bjúgey. Við norðurenda hennar beygist kvíslin austurávið, en svo brátt aftur vesturávið, — og skilur þá eftir hraunjaðar fyrir austan sig; annars liggur sín kvísl með hvoru fjalli utan með hrauninu. — Við þessar stefnubreytingar kvislarinnar myndast dálítið hálfkringlumyndað nes austur úr Þingey. A því er þingstaðurinn, og sjást hans glöggar menjar. Heíir þó nokkuð af þeim eyðilagst við það, að bær var gjörður þar í byrjun 19. aldar. Hann stóð um 40 ár. Eru auðþektar tóftir þær, er bænum tilheyra. En sumstaðar sjer á forntóftir út undan þeim. Hefir þar verið bygt ofan á þing- búðatóftir. Það er merkilegt við þenna þingstað, að utan um hann er tvöföld girðing, hvortveggi mjög fornleg, og hafa þeir garðar verið afar-miklir. Að austanverðu er kvíslin í stað garðanna. Innri girð- ingin er nokkuð óregluleg: kreppist saman er nær dregur kvíslinni, en slær sér þó út aftur. Það kemur af því, að norðurhlið hennar beygir suður fyrir stóran hraunhól, en síðan aftur austur og norð- austur með honum og þá fram á kvíslarbakkann. Hóll þessi heitir Þinghóll. Ytri girðingin myndar næstum reglulegan hálfhring. Hinn hálfhringinn á móti myndar kvíslin og má hann einnig heita reglu- legur, nema hvað hann gengur inn á við sunnantil. Með öðrum orðum: suðurendi girðingarinnar liggur austur á kvislarbakkann dá- lítið sunnar en nesið fer að myndast. Búðatóftir eru eigi allfáar: Vesturhlið innri girðingarinnar er mynduð af búðaröð, sem liggur frá norðri til suðurs. Það eru 5 búðir: hin syðsta nál. 8 fðm. löng, en hver hinna hér um bil helmingi styttri. Austur frá hinni löngu tóftinni er sérstök tóft, ferskeytt, fremur lítil. Beint suður af búða- röðinni er einstök tóft fyrir utan (innri) girðinguna og er norðurend- inn áfastur við hana og nokkuð óglöggur, svo ekki er bægt að ákveða lengd búðarinnar. En einna stærst er hún af búðunum. Nokkrum föðmum austur frá búðaröðinni er nýleg tóft allmikil. Hún hefir tilheyrt bænum og verið annaðhvort fjárrjett eða heystæði. Hún liggur frá norðri til suðurs Fyrir búðatóftum vottar við báða enda hennar, og eru líkur til, að hún hafi verið sett ofan á búðaröð. Framhald af þeirri röð til norðurs heldur svo áfram fyrir utan innri girðinguna norður að hinni ytri. Eru þar fyrir víst 4 tóftir, og allar stórar: 6—8 fðm. á lengd, nema hin syðsta, sem næst er innri girðingunni: hún er um 4 fðm. Á stærð við hana er sjerstök tóft, sem liggur einstök fyrir austan þessa búðaröð hér um bil miðja. Mitt á railli nýju tóftarinnar, sem nýlega var getið, og Þinghóls er stök tóft, langt frá öllum öðrum; hún er einna óglöggust og eigi stór. Ut lítur fyrir, að búðartóft sé áföst innri girðingunni sunnan

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.