Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Blaðsíða 17
19
að koma Glúmi á óvart, og hefir því eigi viljað, áð menn af næstu
bæjum við hann yrðu vísir hins sanna um ferð sína. En svo var
alleðlilegt að sögumenn settu þetta í samband við orð Glúms um
það, að Skúta mundi renna fyrir honum. Það gjörði hann raunar, að
hann rann til manna sinna. En hin frásögnin heflr runnið þar saman
við. Þannig er vel skiljanlegt hvernig á þessari missögn stendur. —
Eg bjó til uppdrátt af gljúfrinu.
Svo er frá sagt í sögunni, að hofið að Þverá hafi staðið fyrir
sunnan á, að Hripkelsstöðum. Þar í túninu eru ýmsar tóftir, sumar
nokkuð fornlegar, en engin sem litur út fyrir að vera hoftóft. A
því mun heldur eigi þurfa að furða sig. Meðan hofið stóð, hefir þar
eigi verið bær kominn. Það, að hafa hofið eigi heima við hæinn á
Þverá, gat naumast haft annan tilgang, en að tryggja hina helgu ró
hofsins. Bær hefir fyrst verið settur þar eftir kristni, þá er hofið
var burt tekið. Og þá hefir hann væntanlega verið settur ofan í
hoftóftina. Þar hefir verið byggilegasti staðurinn á því svæði, sem
túnið nær nú yfir. Því tel eg líklegt, að þar hafi hofið staðíð áður.
Aður en eg skilst við Munka-Þverá vil eg geta þess, að þar er
undir stofuþröskuldi geymdur rúnasteinn. Það er fimmstrendur
stuðlabergsdrangi. Er rúnaletur á tveiin flötum hans, er báðir vita
upp, likt húsmæni, þá er sá flötur veit niður, sem gagnvart þeim
er. En nú eru leturfletirnir vanalega látnir snúa niður, svo letrið
ekki skuli slitna. Þó er svo að sjá, sem steinninn hafi einhvern
tíma komist töluvert við, því næstum helmingur af leturflötunum er
svo flagnaður, að þar er ekkert af letri eftir. Vantar framan af
fyiri línunni en aftan af hinni, því þær snúa sín hvorn veg og
horfir hvor um sig rétt við manni, þegar litið er á steininn þeim
megin. Auk þess er steinninn brotinn í tvent þar um, sem fletirnir
eru heilir. En lesa má á hann fyrir því. Sögn sú fylgir steininum,
að hann sé legsteinn Elínar bláhosu, móður Jóns biskups Arasonar,
og hefir hann því verið nefndur Bláhosusteinn. En það er missögn.
A steininum stendur þetta með rúnaletri:
(Vig)dís Árnadótt(e)r. Guð friði hennar sál.
Er hennar ártíð tveim nóttum fyrir ....
Líklegt er samt, að réttnefndur »Bláhosusteinn« hafi líka verið til á
Munka-Þverá fyrrum, þó nú sé hann glataður fyrir löngu, en nafn
hans síðar færst yfir á þenna, af því menn hafa ekki getað lesið
á hann.
4. Aðrir staðir eru nokkrir í Reykdælu, sem hér koma til at-
hugunar. Handritum sögunnar ber eigi saman um bústað Grana,