Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Blaðsíða 34
Gamlir legsteinar
i Görðum á Álftanesi.
Framliald ritgjörðar í Árbók 19041).
Eftir
Matthías Þórðarson.
Nr. 3. Legsteinsbrot. 1652.
Brot þetta er neðri hluti af litlum legsteini óvönduðum. Það
fanst í kirkjugarðsveggnum fyrir nokkurum árum og liggur nú í
kirkjugarðinum**). Brotið er ekki flatt að ofan og virðist vera alveg
óhöggvið. Strik er utan um letrið, ártalið fyrir neðan strikið. Lengd
brotsins er 46 sm., breidd 37 sm. og þykt um 12 sm. Hæð stafanna
3V8—4V2 sm.
Milli orðanna er tvídepill svo sem á steinunum nr. 1—2. Þar
sem orð endar með línu er ekki tvídepill á eftir (LIKTVN, SARV).
Stafimir eru latínuleturs-upphafsstafir; té-in eru með litlu þverstriki
við báða enda leggsins, jafnstóru að ofan og neðan; æ-hljóðið er
táknað með Æ, ö-hljóð með 0. Hljóðtáknanir og gildi merkjanna er
líkt og á steinunum nr. 1—2: I táknar i, í (og y), tvöfalt n-hljóð er
táknað með N á þeim eina stað, er það fyrir (MINE); sömul. er
tvöfalt r-hljóð táknað með R í HVRE. í sinda eru tveir siðustu
stafirnir skeyttir saman vegna rúmleysis:
RT:F0R:íi.
AR:TIL:LIFSIN
S:LEID:LIKTVA
A:MINE:SARV
NEID:HVRE:S
ÆLV:EG:SIDA
•HELD:SINEA:F-
165Z
J) Framhald þessarar ritgjörðar átti að koma i Árbók 1905, en varð ekki af,
Bökum þess að handritið glataðist.
’) Þetta var ritað 11. VI. ’03; nú (jan. 1907) er þetta legsteinsbrot brotið i þrent.