Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Blaðsíða 30

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Blaðsíða 30
32 ir gólfi varð fyrir undirstaða veggjar, sem lá þvert yfir (eins og bæjarröndin) og hjá henni kom upp sandstöpull sívalur, sléttur utan, nál. lVa al. í þvermál. Iíann var ljósgrár að lit og svo samfeldur, að byggingarmönnum kom í hug að taka hann upp í heilulagi. En þá brast hann. Sást þá, að hann var hoJur innan og hafði ker verið innaní honum: Sáust sveigaförin innaní sandhólfinu þar, sem gjarðir kersins höfðu verið. Tréleifar af kerinu sáust ekki, nema litur eftir af botninum, enda hafði þar verið aska undir en eigi sandur. Kerið virtist hafa verið um 1l/4 al. á hæð og viðlíka á vídd. Af því, sem í kerinu hafði verið, voru eftir beinaleifar, sumt af þeim hélt sér og voru smábútuð sauðabein. Virtist það hafa verið saltkjötsspað. Ofaná beinaleifunum lágu smáar líparít-hellur, sem hafa verið lagðar yfir kjötið, en þar ofaná höfðu verið lagðar 2 blágrýtishellur, hvor út af annari, og hélt sandstöpullinn þeim uppi. Kerið hafði verið grafið ofaní gólf í eldhúsi, nál. 3 al. víðu, og sáust öðrutn megin hlóð og viðarkolaaska. En þetta eldhúsgólf reyndist að vera ofaná uppfyltri tóft, því suðurveggur þess lá svo djúpt nið- ur, að undirstaða hans var neðar en botn kersins. Norðurveggur þessarar uppfyltu tóftar kom ekki í ljós; hefir hann legið norðar en grafið var. Engir munir fundust þar aðrir. — Einkennileg hola eða gangur lá á einum stað frá kerinu gegnum sandhulstrið útí moldina og svo í bugðum niðurávið. Var grafið eftir henni nokkuð dýpra niður en hlaðan er annars grafin, og sást þá bæli kvikindis þess, er grafið hafði ganginn, og frá bælinu lá hann aftur niður í ýmsum bugðum og hættu menn við að grafa hann út. Víðari var hann nokkuð en músarhola er venjulega, og þóttust menn eigi vita, eftir hvaða dýr hann væri. — Dálítill mislitur steinn fannst í moldinni, liklega líparít, en hafði týnzt aftur. Þar var og margt af litlum smásteinum er voru hnöttóttir, sorfnir af vatni og leirlitaðir. Má vera að utanum þá hafi átt að ríða og hafa fyrir kljásteina. 4 Á Spóastöðum í Biskupstungum. Páll bóndi Guðmuudsson bygði heyhlöðu vorið 1904 og gróf 6 ál. djúpt niður. Á 3 ál. dýpt fundust að vestanverðu hlóð og aska mikil, en þar ofaná tréleifar og þakhellur, líkt og rjáfur hefði fallið ofan. Þar fannst steinsnúð- ur af smásnældu og tveir kljásteinar. Að austanverðu fannst kola- bingur, og einnig tréleifar og þakhellur ofaná honum. — Fyrir nokkrum árum var grafið þar fyrir kjallara, litlu austar, þar urðu og hlóð fyrir, aska og viðarkol. Getur það bent á tvíbýli. Þar varð og fyrir hellulagður gangur (bæjardyr?) og þar undir lokræsi, fullt af grjóti og forarblandinni moldu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.