Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Qupperneq 18

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Qupperneq 18
20 föður Helgu, er Háls átti. Seg'ja sum, að hann bygg'i á Granastöðum, en önnur á Amarstöðum. Og með því að kunnugt er, að bær er í Eyjafirði, sem heitir Arnarstaðir, en enginn sem heitir Granastaðir, þá hefir Arnarstaðanafnið verið tekið upp í textann, sem hið rétta, í síðustu útgáfu sögunnar. En þeir, sem því réðu, hafa ekki vitað, að eyðibœr er til í Eyjafirði, sem heitir Granastaðir. Hann er suður í Eyjafjarðardal, svo langt fyrir sunnan Hóla, að annar bær hefir verið þar á milli; sá bær hét Másstaðir. Sér til rústa þessara bæja beggja. Og eftir því sem af landslagi verður ráðið, hafa Grana- staðir ekki verið sérlegt smábýli. Hygg eg því líklegt, að þau Reykdæluhandrit, sem hafa Granastaða-nafnið, hafi réttara: Grani, faðir Helgu, hafi búið á þessum stað, og bærinn verið við hann kendur. Tjörn í Eyjafjarðardal, þar sem Hallvarður, fóstri Vigfúss Víga- Glúmssonar, gjörði bú, hefir verið vestanmegin ár, suður af Tjörn- um. Það hefir verið smákot og eru rústir þar litlar. — Aðrir eyði- bæir en þessir þrír, sem nji var getið, eru ekki 1 Eyjafjarðardal. Kárapollur heitir enn nálægt Eyjafjarðará austanmegin, gegnt Kroppi. Hann er lítill um sig, en tiltölulega djúpur, er eigi ávalt barmafullur og leggur vanalega seinna en áin. Gat Þórir vel leynst þar um stund. Skálapollur heitir þar nokkru ofar. Hann er víður og grunnur og leggur fljótt. Þar var ekki staður til að leynast í, enda lengra að fara þangað. Fer sagan með rétt mál í þessu. 5. Hanatún. Svo segir Landn. III, 15: »Eyvindur hani . . . . var frændi öndóttssona. Þeir gáfu honum land, ok bjó hann í Hana- túni, .... þar er nú kallat Marbæli«. Bæði þau nöfn: Hanatún og Marbæli, eru nú týnd. En Hanastaðir heitir eyðibýli við Eyjafjörð, skamt suður frá Glæsibæ. Þar hafa til skamms tíma verið sauða- hús. Fornir garðar sjást þar um kring. Þetta hefir verið í landi öndóttssona, og ber vel heim að þetta sé hið forna Hanatún. 6. Ymsir staðir í Hörgárdal og Yxnadal. I Fomhaga er hóll niðri í túninu, sem heitir Kirkjuhóll. I hon- um er laut mikil, aflöng frá austri til vesturs, og er hún kölluð Kirkjutóft. Þó er svo að sjá, sem dyrnar hafi verið á austurendan- um. En sé þetta tóft þeirrar kirkju, sem Már Glúmsson lét gjöra, þá mun þetta eigi óeðlilegt; þá mun það enn eigi hafa verið orðin almenn venja hér á landi, að kirkjudyr skyldu snúa til vesturs. — Glúmshóll heitir melhóll einn, skamt fyrir austan tún í Fornhaga. Hann á að vera kendur við Víga-Glúm. En engin sögn er um hvaða atvik því olli, að hóllinn fékk nafn af honum.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.