Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Qupperneq 21

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1906, Qupperneq 21
23 Vatnsá, sem Landn. nefnir, 13. k., ætla menn að hljóti að vera smá-á sú, sem nú heitir Hraunsá, því hún kcmur úr stöðuvatni, og um önnur stöðuvötn er þar ekki að ræða. Landnámsbærinn »at Vatnsá«, þar sem Þórir þursasprengir bjó, er eftir því sá, sem nú heitir að Hrauni. Vaská heitir dálítil á, sem kemur að austan í Yxnadalsá móts við Gil, sem er vestanmegin, nær suður við öxnadalsheiði. Vaská kemur fram úr gljúfrum. Norðan við ána, bak við litla hæð, vottar fyrir lítilli rúst. Er sagt að þar hafi sekur maður haft aðsetur um hríð. En er menn komu og sóttu að honum, á hann að hafa hiaup- ið suður fyrir gljúfrið og fallið þar. Er þar sýnd dys hans. Þetta kann að hafa söguleg sannindi við að styðjast. Þótt staðurinn væri eigi óhultur, þá hefir hann eigi verið ver valinn en ýmsir aðrir staðir, sem skógarmenn neyddust til að hafast við á. En hafi gljúfrið eigi verið víðara en svo i fornöld, að nokkur maður gæti hlaupið yfir það, þá hefir mikið mátt hrynja úr börmum þess síðan. — Stefán bóndi Arnason á Steinsstöðum, ágætur fróðleiks- og mentamaður, fylgdi mér á flesta þá staði, sem hér eru taldir, og sagði mér margt um þá og fleira. III. Skagaíjarðarsýsla. 1. I landnámi Þorbrands örreks. Svo segir Landn. III, 8: »Þor- brandr örrek nam upp frá Bólstaðará Silfrastaðahlíð alla ok Norðrár- dal allan fyrir norðan ok bjó at Þorbrandsstöðum, ok lét þar gera eldhús svá mikit, at allir þeir menn, er þeim megin fóru, skyldu þar bera klyfjar í gegnum ok vera öllurn matr heimill; við hann er kend örreksheiði upp frá Hökustöðum«. Bæjarnafnið Hökustaðir og örnefnin Bólstaðará og örreksheiði eru nú týnd. En ráða má af líkurn hvar þau hafi verið. Um Bólstaðará getur enginn vafi verið; hún hlýtur að vera árspræna sú, .-er kemur ofan urn gljúfragil fyrir utan Silfrastaði. Það er nú kallað Bólugil. Nafnið Bólstaðará hlýt- ur að vera kent við bæ, sem hefir heitið Bólstaður. Iians er raunar hvergi getið. En til skamms tíma var bær í hlíðinni fyrir utan Bólugil og var hann nefndur Bóla. En líka er liann í jarðabókum nefndur Bólstaðargerði, og er það ef til vill mishepnuð tilraun til að skýra bæjarnafnið Bóla og koma því í nokkurs konar samræmi við Bólstaðará í Landn. Svo mikið er víst, að báðar myndirnar, Bóla

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.